Kirkjuritið - 01.04.1954, Page 44
Erlendar fréttir.
Hvað gerði dr. Albert Scliweitzer
við Nobelsverðlaunin ?
Margir kannast við hinn fræga þýzka kristniboða dr. Albert
Schweitzer. Hann er víðkunnur heimspekingur, læknir, guð-
fræðingur og tónlistarmaður, en það, sem mest er um vert, er
hið mikla mannúðarstarf, sem hann hefir unnið meðal svert-
ingjanna í Vestur-Afríku.
f viðurkenningarskyni fyrir störf sín hlaut hann friðar-
verðlaun Nobels fyrir s.l. ár, 540000,00 kr.
Hvernig hefir hann notað þetta fé? öllu hefir því verið
varið til þess að auka við sjúkrahúsin í kristniboðsstöðinni í
Lambarene, og svo önnum kafinn var Schweitzer við þessar
byggingar, að hann gaf sér ekki tíma til að fara til Oslo, til
þess að taka á móti verðlaununum.
Dr. Schweitzer er nú orðinn 78 ára gamall, en hann ann
sér engrar hvíldar, daglega vinnur hann að læknisstörfum,
og eftir langan vinnudag „hvílir“ hann sig við ritstörf eða
túnlistariðkanir. Hann er löngu heimsfrægur rithöfundur og
auk þess frábær tónlistarmaður, einn mesti orgelsnillingur,
sem nú er uppi.
Dr. Albert Schweitzer er nú almennt talinn einn merkasti
maður sinnar samtíðar.
Billy Graliam í Bretlandi.
Billy Graham heitir vakningaprédikari einn í Bandaríkjun-
um, sem vakið hefir á sér mikla athygli, og hefir hann haldið
fjölmennar samkomur víðs vegar um Bandaríkin.
1 byrjun marz kom hann til Bretlands, og hafði koma hans
verið mjög rækilega undirbúin af brezkum áhugamöimum.
Hefir hann haldið samkomur í stóru hringleikahúsi í
London, er rúmar um 11 þús. manna, og er aðsókn sögð mikil
að samkomum hans.