Kirkjuritið - 01.04.1954, Page 46
188
KIRKJURITIÐ
Nýlega var stofnað lúterskt kirkjuráð fyrir Bretlandseyjar,
og unnið er að því að gera lútersku kirkjuna þar fjárhagslega
sjálfstæða.
Engin kirkja í Stalinborg.
Eftir fregnum, sem borizt hafa frá Austur-Þýzkalandi, er
verið að reisa borg eina nálægt Fiirstenberg, er kvað eiga að
bera nafnið „Stalinstadt“. Er borg þessi reist í öllu eftir skipu-
lagi kommúnismans. Það vekur athygli, að fyrir kirkjur eru
engir staðir ætlaðir, og ekkert tillit hefir verið tekið til óska
lúterskra eða katólskra manna í því sambandi.
World Christian Digest
heitir kristilegt mánaðarrit, sem gefið er út í Bretlandi.
Flytur það útdrætti úr greinum, sem birtast um kristindóms-
og kirkjumál í blöðum og tímaritum og eru það oft úrvals
greinar.
Rit þetta kostar á ári (12 hefti) 14 shilhnga og er hægt að
panta það beint frá útgáfufélaginu: The World Christian
Digest, 124 Glouchester Road, Kensington, London.
Ö. J. Þ.
Dean Inge latinn.
Nýlega er látinn einn af svipmestu kirkjuhöfðingjum Bret-
lands, prófastur St. Páls kirkjunnar í Lundúnum, William
Ralph Inge, 94 ára að aldri.
Hann var hálærður maður og mikill rithöfundur, dulspek-
ingur og heimspekilegur í rithætti. Hann var oft kallaður The
gloomy Dean, skuggalegi prófasturinn, af því að hann var
mjög skyggn á skuggahliðar menningar nútímans. Fyrir löngu
las ég þau ummæli hans, að brátt mundu menn ekki læra
lestur, skrift né reikning, því að vélarnar tækju við því öllu.
Hann var líka stundum kallaður The outspoken Dean, opin-
skái prófasturinn, enda var hann óhræddur að láta i ljós
skoðanir sínar. Hann vildi leyfa hjónaskilnað og fæðingar-
takmarkanir, og taldi jafnvel sjálfsmorð leyfileg undir vissum
kringumstæðum. En hann hafði óbeit á lýðræði, fegrunar-
meðulum, rómversk-katólsku kirkjunni og byltingum.
M. J.