Kirkjuritið - 01.04.1954, Page 47
ERLENDAR FRÉTTIR
189
Brezka og erlenda Biblíufélagið 150 ára.
Brezka og erlenda Biblíufélagið á um þessar mundir 150
ára afmæli og ætlar að minnast þess með fundahöldum síð-
ustu daga aprílmánaðar og hátíð 1.—7. maí. Fulltrúi Biblíu-
félagsins íslenzka verður ungfrú Ingibjörg Ölafsson og mun
hún fiytja ávarp frá biskupi, sem er forseti félagsins. Þessi
ágæti fulltrúi vor mun að forfallalausu rita grein um hátiða-
höldin í næsta hefti Kirkjuritsins.
*
Innlendar íréttir.
Séra Óli Ketilsson
fyrrum prestur í Hvítanesi i ögurþingum andaðist að Isa-
firði 25. marz síðastliðinn, 57 ára að aldri. Minningargrein
um hann mun verða birt í næsta hefti Kirkjuritsins.
Séra Hálfdan Ilelgason,
prófastur að Mosfelli, varð bráðkvaddur á leið yfir Hellis-
heiði 8. apríl, 56 ára að aldri. Hans verður nánar getið í
uæsta hefti.
Ömsóknir um prestaköll.
Um Setbergsprestakall sækja þeir séra Lárus Halldórsson
Prestur í Flatey og séra Magnús Guðmundsson prestur í ögur-
þmgum.
Um Raufarhafnarprestakall sækir séra Ingimar Ingimars-
s°n settur prestur þar og
um SkútustaSaprestakall guðfræðikandidat örn Friðriksson
Uá Húsavík.
Almennur bænadagur 23. maí.
Biskup íslands hefir nýlega ritað öllum próföstum bréf, þar
sem hann tilkynnir, að hinn almenni bænadagur skuli hald-
inn eins og að undanförnu 5. sunnudag eftir páska, eða sunnu-
haginn 23. maí að þessu sinni. Ber að þakka föðurforsjón
Guðs og kærleika á liðnum tímum og biðja þess, að hann láti
]jós trúar og kærleika lýsa þjóð vorri og öllum þjóðum á veg
friðar og bræðralags í anda Jesú Krists.