Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.01.1959, Qupperneq 7

Kirkjuritið - 01.01.1959, Qupperneq 7
Sœkjum fram (Prédikun Ásmundar Guðmundssonar á nýársdag í Dómkirkjunni — lítið eitt stytt). Jesús sagði: Veröldin er brú, far yfir luma, en reis þér ekki bústað á henni. Við komu nýs árs erum vér minnt á flugstraum tímans. En hann skal ekki skelfast, því að ofar bárum hans blika eins og stjörnur eilíf orð Krists, og við nafn hans er árið kennt. Ég hefi valið í dag að hugleiðingarefni orð hans, sem varðveitzt hafa, þótt ekki standi í Nýja testament- inu. Hafa nokkur fleiri slíkra orða, rituð á sefpappír, kom- ið ósködd upp úr sandinum á Egiptalandi. Á dögum Jesú voru engar brýr á Gyðingalandi. En hann kom til byggða Týrusar, höfuðborgar Fönika, sem reis tignarleg eins og drottning úti á eyju skammt frá landi, og þar var brú í milli eða hafnargarður, mannvii’ki hið mesta. Þar norður frá hefir Jesús staðið með læri- sveinum sínum og horft á umferðina: farþega skipanna og mikinn mannfjölda annan á hraðri göngu og stórar flutningalestir til borgarinnar eða frá henni, þúsundir af mörgum þjóðum, kynkvíslum og tungum. Hann virðir fyrir sér þetta líf, er streymir áfram enda- laust. Svona er veröldin, eins og brú, sem mannkynið þyrpist inn á og heldur eftir ár frá ári og öld af öld. Hann lítur til lærisveina sinna hvers og eins og bendir þeim: „Veröldin er brú. Far yfir hana. En reis þér ekki bústað á henni.“ Sækið þannig fram. Enn í dag stendur Kristur við dyr nýja ársins og horfir á umferð milljónanna yfir brúna, hinn eilífi Guðs sonur, frelsari mannanna bæði þessa heims og annars. Hann

x

Kirkjuritið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.