Kirkjuritið - 01.01.1959, Side 47
KIRKJURITIÐ
45
Gjöf til gamalmennahcelisins Betel á Gimli var send vestur um
haf meö séra Jóni Bjarman. Er hún mynd af Þingvöllum forkunnar
fögur. Kjarval málaði, en íslenzka ríkið gaf.
Aöalfundur Sambands austfirzkra kirkjukóra var haldinn í Egils-
staðaþorpi sunnudaginn 7. sept. 1958. Jakob Einarsson prófastur
setti fundinn. Fundarstjóri var kosinn Stefán Pétursson, Egiisstaða-
þorpi og ritari Jón Sigfússon, Eiðum. Tiu fulltrúar sátu fundinn, auk
stjórnarnefndarmanna og nokkurra annarra úr stjórnum kirkjukóra
af sambandssvæðinu. Séra Jakob Einarsson prófastur flutti erindi um
kirkjusöng. Hann talaði um gildi söngsins, jafnt hjá frumstæðum
Þjóðum og þeim, sem teljast siðmenntaðar. Söngurinn sameinar hugi
manna og lyftir hjörtum til himins. Prófastur kvað æskilegast, að
allur söfnuðurinn syngi við messugjörðir, með kirkjukórinn sem leið-
anda. Þá hvílir, eins og vera ber, tign og friður yfir biðjandi sálum
í húsi Drottins. Máli sínu iauk prófastur með áskorun til allra, sem
geta lið til lagt að efla og styðja kirkjusöng. Þá lýsti Jakob prófastur
með nokkrum orðum tilgangi og störfum Sambands austf. kirkju-
kóra, sem verður 15 ára á næsta ári. — Rætt var um afmæliskonsert
Kirkjukórasambandsins n. k. sumar. Nokkrir tóku til máls og voru
Þess fýsandi, að haldið yrði myndarlegt söngmót á næsta sumri. Var
samþykkt að beina þvi til stjórnarinnar að vinna að því að fá kenn-
ara, og undirbúa slíkt mót sem bezt. Séra Jakob prófastur kvaddi sér
hljóðs og ræddi um þá miklu fæð, sem nú virðist vera á sæmilega
®fðum organistum. Víða í sóknum er enginn organisti. Prófastur
kvaðst hafa rætt um þetta við Eyþór Stefánsson tónskáld; hefði hann
lagt til, að haldið yrði námskeið, sem gæti bætt úr þessu ástandi,
sem er mjög lamandi fyrir sönglíf í kirkjusóknunum. Vísað var til
stjórnarinnar að athuga sem bezt, hvernig leyst yrði úr þessu máli.
Formaður er nú séra Einar Þór Þorsteinsson.
4 jóladag var vígt nýtt altari, nýr prédikunarstóll og nýr skírnar-
fontur í kirkju Óháða safnaðarins i Reykjavík. Fyrir jólin var einnig
gengið frá lýsingu í kirkjunni og er hún nú langt komin. Er gert ráð
íyrir, að hún verði vígð í vor. Fyrir messu á jóladag afhenti Jón
Árnason skírnarfontinn fyrir hönd Bræðrafélags safnaðarins, og for-
maður safnaðarins, Andrés Andrésson, veitti gjöfinni viðtöku. Skírn-
arfontinn gerði Ásmundur Sveinsson myndhöggvari, og var hann
vígður með því að safnaðarprestur skírði þrjú börn upp úr honum.
Hinn nýja prédikunai’stól smíðaði Björn Þorsteinsson trésmíðameist-
Rri, sem einnig gaf kirkjunni stólinn. Séra Emil Björnsson þakkaði
Þessar rausnarlegu gjafir.
Leiörétting. I smágreininni Móöirin í síðasta hefti (bls. 448) á
Þriðja málsgrein að ofan að vei-a þannig: Þá var kona nokkur ævin-
lega í nálægð þinni, hún fylgdi þér hvert fet o. s. frv. Ennfremur var
Prentvilla í grein Dr. E. A. í nóv.-heftinu 1958, bls. 420, 1. línu eftir
greinaskilin: „réttlætiskenningin", les réttlætingarkenningin.
Vegleg gjöf. Sparisjóður Glæsibæjarhrepps í Eyjafjarðarsýslu
minntist nýverið hálfrar aldar afmælis sins á þann myndarlega hátt