Kirkjuritið - 01.03.1960, Síða 17

Kirkjuritið - 01.03.1960, Síða 17
KIRKJURITIÐ 111 sjúklingnum. Young komst að þeirri niðurstöðu, að oft gæti presturinn leyst það hlutverk af hendi, sem engum öðrum vaeri fært. Þegar Young hafði lokið guðfræðiprófi, var honum boðið að starfa við sjúkrahús í Winston, Salem. Er hann tók við stöð- unni, lét einn námsfélagi hans í ljós vonbrigði, vegna þess að Young sótti ekki um prestsstarf hjá einhverjum söfnuði. Young svaraði honum því, að 1 því starfi, sem hann hefði kosið sér, mundi hann fá fleiri tækifæri til þess að vinna að þjónustu í anda Krists en hinn gæti gert sér nokkra grein fyrir. Hann átti líka eftir að sýna það. En árið 1946 var það ekki álitin nein virðingarstaða að starfa sem prestur við sjúkrahús. Flestir, sem störfuðu að slíku, voru annaðhvort uppgjafaprestar eða menn, sem voru að bíða eftir betri stöðu. Young varð líka var við, að starfsfólk sjúkrahússins gerði sér litlar hugmyndir um, í hverju starf hans ætti að vera fólgið. Hann hóf starf við hinar erfiðustu aðstæður. Fyrstu vikurnar gekk hann um gang- ana, talaði við sjúklingana, hlustaði á vandamál þeirra, reyndi að hjálpa. Læknar og hjúkrunarkonur litu hann forvitnisaug- um og ýttu honum kurteislega frá, þegar þau vitjuðu um sjúk- lingana. Smám saman vandist starfsfólkið honum, en sumir spurðu hæðnislega, hvort hann hefði frelsað nokkrar sálir ný- lega. Þótt þessi aðstaða væri ekki uppörvandi fyrir Young, tók hann þessu með þolinmæði, og brátt kom að því, að bæði lækn- ar og hjúkrunarkonur urðu að viðurkenna, að starf hans bæri árangur. Hjúkrunarkonurnar báru það, að oft hefðu heimsókn- ir hans mjög róandi áhrif á sjúklingana. Svæfingarlæknar sögðu, að skurðsjúklingar væru rólegri og þyrftu minni svæf- ingu. Læknarnir töluðu um, að það væri líkast því, að maður- inn byggi yfir einhverjum undramætti. Þeir sögðust ekki skilja Þeð. Hjartasérfræðingurinn spurði Young dag einn undrandi: »Þér voruð í herbergi nr. 221 rétt á undan mér í morgun. Hvað skeði?“ Young sagðist hafa reynt að hjálpa sjúklingnum til Þess að endurskoða afstöðu sína gagnvart manni, sem hann áleit að hefði gert á hluta sinn, og athuga hvaða ábyrgð hann sjálfur hefði á því, sem skeði. Læknirinn sagði: „Þetta er undravert. í marga daga hef ég verið að reyna að koma blóð- þrýstingnum niður, og nú loksins hefur það tekizt."

x

Kirkjuritið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.