Kirkjuritið - 01.12.1960, Page 39
KIRK JURITIÐ
469
þá fulltrúarnir erindi um kirkjur Norðurlanda. Hlýddu menn
af miklum áhuga á það, er ísland varðaði, og lék einkum á því
mikill hugur að fá að vita, hvert yrði framtíðarhlutverk Skál-
holts. •—• En mesta athygli vakti frásögn formannsins, Nikolain-
ens prófessors, um mjög mikla aðsókn kvenna að guðfræðideild-
inni í Helsingfors. Þær stunduðu 65 guðfræðinám síðastliðið ár
og mun sú tala meir en tvöfaldast í ár.
Aðalumræðuefni fundarins voru mót á vegum Kirknasam-
bandsins á komandi tímum, hlutverk þeirra og fyrirkomulag.
Sérstök áherzla var lögð á starf að æskulýðsmálum og heimilis-
menningu.
Manfred Björkquist, sem hefur verið aðalmáttarstoð Kirkna-
sambands Norðurlanda frá upphafi og treyst þátttöku íslands
í því, baðst nú undan endurkosningu í stjórn fyrir aldurs sakir.
En hann er orðinn 76 ára. Hörmuðu menn það að missa hann
úr stjórninni, en kusu hann heiðursforseta hennar í einu hljóði.
í stað Björkquist mun koma í stjórnina Olov Hartman, skóla-
stjóri Alþýðuskólans í Sigtúnum og nafnkunnur rithöfundur.
Pulltrúi Noregs verður væntanlega Anker Nilsen.
Um formann í stjórninni skiptir árlega, og var nú kosinn Nils
Karlström, en K. Skydsgaard prófessor varaformaður.
Til tals kom, að næsti stjómarfundur yrði haldinn að sumri
á íslandi, ef þá færi fram vígsla Skálholtskirkju. En þar sem
allt er enn í óvissu um það, var frestað að sinni ákvörðun um
fundinn.
Mikil eining ríkti á fundinum, og hefur hún einkennt alla
stjórnarfundina. Er það manna mest að þakka Manfred Björk-
quist.
Ásmundur Guömundsson.
Orðsending.
Sóknarprestar í Hólastipti eru vinsamlegast beðnir að gera
skil fyrir Tíðindi hið allra fyrsta. Svo og aðrir, sem tóku að sér
að greiða fyrir ritinu.
Stjárnin.