Kirkjuritið - 01.10.1961, Page 11
Merk starfsemi
Kirkjuritið liefur áður vikið að slarfi séra Haldors Hald,
framkvæmdastjóra „Kirkens Korsliær“ í Kaupmannahöfn. Þessi
merki prestur kom liér við fyrir nokkru á leið sinni vestur
um haf, þar sem hann hyggst hafa nokkra námsdvöl. Hann
virtist hverjum manni vel, sem hitti liann, látlaus og vingjarn-
legur með afbrigðum, lilýr og hispurslaus í viðtali.
Sunnudagskvöldið 17. september hélt liann merkt erindi í
Hallgrímskirkju og fer stuttur útdráttur úr því hér á eftir,
gerður af séra II. H. sjálfum.
Megin efnið var lýsing á afstöðu syndara og tollheimtu-
nianna til liins kristna boðskapar. „Kirkens Korshær“ er ein-
mitt eitt af tækjum hinnar dönsku þjóðkirkju til að nálgast
þá, sem allt er komið í brot fyrir. Það hefur það í för með
sér, að „krosslierinn“ verður að herja á lokað samfélag, sem
að mörgu leyti er í heinni andstöðu við almennt mannlíf, og
einnig er alveg sérstaklega andstætt öllum kirkjunnar mönnum.
Það er útilokað að miðla mönnum fagnaðarerindinu sem
náðargjöf hins meiri liáttar til handa smælingjanum. Menn
verða að tileinka sér það sameiginlega á jafnréttisgrundvelli.
Þess vegna verður maður fyrst að tengjast samfélagi við þann,
sem maður ætlar að liafa kristileg áhrif á.
Samfélag utanveltumanna er mótað af drykkjusvalli, ólifn-
aði, eiturlyfjanotkun og gleæpaverkum. Útlögunum finnst þeir
sjálfir ofurseldir grimmilegum örlögum, og óneitanlega virð-
ast þeir á valdi illra anda, sem lirekja þá þvert á móti vilja
þeirra og skynsemi fram af liömrum og baka þeim sjálfseyð-
ittgu og ótímabæran dauödaga. I þessum sporum lærist mönn-
uni að biðja, og því hittir maður í hópi þeirra marga bæn-
rækna menn og marga, sem trúa, þrátt fyrir sína eigin og ann-
nrra fordæmingu.