Kirkjuritið - 01.10.1961, Blaðsíða 50
384
KIRKJURITIÐ
500 eru fulllæknað'ir síðustu 9 árin. En niörg Jrúsund manns fá hins vegar
inikla hjálp hæði andlega og likamlega. — Dönsk hjúkrunarkona, Martha
Pedersen er nú yfirstjórnandi holdsveikrabyggðarinnar í Kidugalo, þar seni
10.000 holdsveikra manna eru sainan koniin. Er hún sögð liafa unnið frá-
hært líknarstarf.
Georg Olaj Rosenquist, liiskup í BorgS á Finnlandi, andaðist í júlíni.
síðastliðnum, 68 ára að aldri. Hann var forscti K.F.U.M. á Finnlandi 1919
—’26 og forseti Kristilegu stúdentahreyfingarinnar þar 1930—’35. Nær ald-
arfjórðung, 1930—’54, var liann prófessor í kennimannlegri guðfræði við
háskólann í Ábo og síðustu 12 árin jafnframt rektor lians. Því næst var
hann kosinn biskup og vígður liiskupsvígslu 1954. Gerðist hann þá yfir-
niaður sænskumælandi safnaða á Finnlandi og reyndist mjög duglegur
og áhugasainur Iiiskup. Hann var um áraliil og allt til dauðadags í stjórn
Kirkjusainbands Norðurlanda. Kvað þar mikið að lionum, og var hann
jafnframt mjög samvinnuþýður Er nú stórt skarð fyrir skildi í stjórn sam-
handsins, er Rosenquist biskup er látinn og Manfred Bjarkquist hættur
störfum. Rosenquist var afkastamikí 11 rithöfundur og lætur eftir sig merk-
ar bækur mn kirkjusögu, kristilegt uppeldi og ræðugerð. Hann mun eng-
um gleymast, er kynntust honuni. Fóru saman hjá lionum i ríkum mæli
ástúð og glæsimennska.
Sunnudagaskólastarf meS Svíum fer nú mjög í vöxt hin síðari árin. Hef-
ur sunnudagaskólakennurum fjölgað uiii 1032 síðan 1954, og eru þeir nú
orðnir 8521, en sunnudagaskólanemendur 135963. Um 1200 sunnudagaskóla-
kennarar sóttu þing í Linköbing í sumar.
Lögþing Fœreyinga hefur samþykkt að fara þess á le.it við kirkjustjórn-
ina, að prófastur Færeyja verði framvegis varabiskup yfir eyjunnm.
Framkvœmdastjóri Lútersku heimssambandsins hefur verið kjörinn
dr. Kurl Schmidt-Clausen i stað dr. Lund-Quists. Hami var áður sóknar-
prestur í Wunstorf, útborg frá Hannover, og tók að sér um skeið störl
Lund-Quists, meðan hann var sjúkur. Hann er rnaður vel til forystu fall-
inn og ágætlega lærður í guðfræði. Hann er aðeins fertugur að aldri.
KIRK JURITIÐ
Tímarit gefið út af Prestafélagi íslands, kemur út 10 sinnum á ári.
Ritstjóri: Gunnar Árnason.
Árgangurinn kostar 70 krónur.
Afgreiðslu annast Ingólfur Þorvaldsson.
Sími 36894,
Prentsmiðja Jóns Helgasonar.