Kirkjuritið - 01.10.1961, Blaðsíða 16
KIRKJURITIÐ
350
samfélag um trú og starf. Ábyrgur maður finnur, að slíkt einka-
mál getur trú hans ekki verið.
Ábyrgir menn, ábvrgir gagnvart samtíð sinni og kynslóðinni,
sem landið á að erfa, standa nú andspænis mikilli alvöru. Að
utan ógnar kristninni voldugasti andstæðingurinn, sem liún
hefur átt. Að innan ógnar lienni tómlæti og afskiptaleysi
manna, sem ættu að veita heimi virkan stuðning vegna þess að
þeir sjá, bvert stefnir. Viðreisnarstarfið, sem liefja þarf, er
ekkert sérmál prestanna. Það er málefni allra, sem liættuna
sjá og vilja vera ábyrgir menn“.
Ljóst er, að í báðum þessum greinum er lagður mikill um-
ræðugrundvöllur. Sannleikurinn líka sá, að það sem hér ræðir
um, er ekki neitt íslenzkt fyrirbæri, heldur mikið áhyggjuefni
í öllum kristnum löndum. Víðast hvar er það brotið miklu
meira til mergjar en bér — og einkum leitað leiða til endur-
nýjungar kristnilífinu. Mönnum verður að skiljast betur en
þeim er nú ljóst, að lífsskoðanir og lífsbreytni, sem þeim eru
þrátt fyrir allt hugfólgnar, eru í bættu. Og livað sem segja má
með réttu um deyfð og dugleysi vor prestanna, baggar það
ekki þeirri staðreynd, að Iiér veltur meira á viðhorfi og við-
brögðum almennings, bárra og lágra. Alvarlegasta breytingin,
sem orðið hefur er þessi: Fyrir fáum áratugum töldu menn
almennt nð sér vœri skyh að viðhalda kristindóminum í land-
inu eftir mætti. Þess vegna vöktu þeir vfir kristilegri upp-
fræðslu unglinganna frá blautu barnsbeini. Og sóttu sjálfir
meira og minna kirkju af skyldurækni. Nú er af flestum látið
reka á reiðanum í báðum þessum efnum.
Það er fvrst og fremst af hugsunarleysi. Því er ekki aðeins
þörf á að umræður þessar falli ekki niður, heldur taki lærðir
og leikir enn betur liöndum saman um vaxandi safnaðarstarf-
semi. Og þrátt fvrir allt má ekki gleyma því að þar gerist
margt nýtt og gleðilegt um land allt.
Mikilsver'8 frarn kvœm d
Fyrir atbeina fyrrv. beilbrigðismálaráðberra Bjarna Bene-
diktssonar, forráðamanna Bláa bandsins, o. fI., hefur vistheim-
ili drykkjusjúkra rnanna í Gunnarsbolti verið endurbyggt.