Kirkjuritið - 01.10.1961, Page 33
KIRKJURITIÐ
367
hinar búðirnar að Görðuni í Alftanesi og var þar um að ræða
samvinnu milli kirkjudeilda í Ameríku og íslenzku kirkjunnar.
Unnið var að endurreisn hinnar fornu Garðakirkju og voru
vinnubúðaleiðtogar þeir Rev. Joe Bass og sr. Bragi Friðriks-
son. Var þar mikið unnið og afköst góð.
Fyrstu umræður um skozk-íslenzkar vinnubúðir fóru fram
s.l. sumar, er Skotar voru gestgjafar íslenzka liópsins, sem tók
þátt í æskulýðsþingi Alkirkjuráðs í Lausanne í Sviss í fyrra.
En um það leyti var formaður vinnubúðanefndar, dr. Þórir
Kr. Þórðarson, einnig í Skotlandi, og var liann mjög meðmælt-
ur slíkum samskiptum, sem vonandi eiga eftir að aukast í
framtíðinni. S. 1. haust var svo æskulýðsfulltrúi á ferðalagi
um Vestfirði og átti þá m. a. tal við sóknarprest og skólastjóra
að Núpi í Dýrafirði, þá séra Stefán Lárusson og Arngrím Jóns-
son, og stakk upp á því við þá að liafa vinnuflokk þar að
sumri. Var það rætt heima í héraði og við vinnubúðanefnd
þjóðkirkjunnar og tillagan samþykkt af öllum aðilum.
Var þarna stigið merkilegt skref, þar sem þessar vinnubúðir
voru um tvennt frábrugðnar þeim búðum, sem hér hafa áður
verið lialdnar. 1 fyrsta lagi er hér — eins og á Görðum — um
samskipti tveggja landa að ræða, en ekki starfað með stuðn-
itigi æskulýðsdeildar Alkirkjuráðs eins og áður hafði verið
gert. Var Alkirkjuráði þó skýrt frá undirbúningi öllum og
tillögum og þáð lijá þeim ýmis hjálpargögn og leiðbeiningar.
Og í öðru lagi skyldu þessar vinnubúðir ekki aðeins starfa að
byggingu kirkju eða endurreisn kirkju, beldur að viðlialdi og
fegrun skólastaðar. Fer enda vel á því, að vinnubúðastarf-
seminni sé beint í áttina að ýmsum þörfum viðfangsefnum auk
aðstoðarinnar við sjálf kirkjuhúsin. Og á Núpi var ekki aöeins
hirkjan máluð að utan auk prestssetursins, heldur einnig heima-
vistir, skólastjóraíbúðir, skólabyggingin sjálf, elzta skólahúsið,
sundlaugin og leikfimissalurinn. Þá var girt fyrir skógrækt í
hrekkunni fyrir ofan staðinn og lireinsað og rakað í kring.
Vinnubúðaleiðtogar voru þeir Ronald E. Beasley og undir-
ritaður.
Voru þetta liinar verklegu framkvæmdir. En þær eru þó
ekki nema ein Iilið vinnubúðanna, þó að oftast beri einna mest
á þeim. Hinar hliðarnar snúa m. a. út á við að fólkinu, sem
hynnist vinnubúðunum, ]).e.a.s söfnuðinum og inn á við, að