Kirkjuritið - 01.10.1961, Blaðsíða 46
380
KIRKJURITIÐ
þaó hefur starfað. Minntist hann í því satnbandi Sigurðar Birkis fyrrv.
söngmálastjóra og hans ótrauða starfs og eldheita áhuga á söngmálum
Þjóðkirkjunnar, allt til þess síðasta. Yar samþykkt að mælast til þess
við Jón ísleifsson, að hann gæfi dagblöðum bæjarins aðalinntak skýrslu
sinnar og óskaði eftir að þau birtu hana lesendum sínum. Þá óskaði fund-
arstjóri eftir, að dr. Friðriks Friðrikssonar yrði niinnst í satnbandi við
þessa skýrslu. Dr. I’áll Isólfsson gat þá um það, að sr. Friðrik hefði ekki
aðeins verið hinn mikli æskulýðsieiðtogi, heldur hefði liann einnig samið
allmörg lög og verið listamaður á ýmsum sviðum. — Litlar umræður urðu
um skýrsluna og varð dr. Páll ísólfsson, þegar hér var komið, að fara af
fundinum vegna anna, sem hiðu hans. Þakkaði fundarstjóri honmn kom-
una á fundinn og störf lians. — Þegar hér var komið mætti á fundinuni
sr. Skarphéðinn Pétursson, Bjarnanesi, fulltrúi fyrir Kirkjukórasamband
A.-Skaftafellsprófastsdæmis.
5. Þá var tekið fyrir næsta dagskrármál, sem var söngkennslan. Jón
Isleifsson reifaði niálið fyrst. Lagði hann mikla áherzlu á aukna þátttöku
safnaðarins í messusöngnum og taldi að of mikil áherzla sé lögð á fjór-
raddaðan kirkjusöng. Kirkjutónlist á ekki að vera í formi hljómleika.
Leggja her áherzlu á túlkun sálmaiina. — Siðan tók til máls dr. Róbert
A. Ottósson, söngmálastjóri. Var hann á sama máli og Jón Isleifssoii
varðandi eflingu safnaðarsöngsins. Ræddi hann um nauðsyn þess, að
gera messuna anðveldari aö formi, en auka þó tilbreytni hennar. Gerði
liann nokkra grein fyrir starfssviði sínu og áætlunum. Fannst lionum
óeðlilegt að söngmálastjóri væri formaður Kirkjukórasamhandsins og
skoraðist uiidan því. -— Fleiri tóku til máls.
6. Hér var gengið til kosninga. Yar stjórn kosin með lófataki, en liana
skipa: Jón ísleifsson organl., formaður. Páll Jónsson kennari, ritari. Séra
Jón Þorvarðarson, gjaldkeri. Jónas Tómasson tónskáld f. Vestfirðinga-
fjórðung. Eyþór Stefánsson tónskáld f. Norðlendingafjórðung. Bergþór
Þorsteinsson organleikari f. Austfirðingafjórðung. Frú Hanna Karlsdóttir
f. Sunnlendingafjórðung. — I Varastjórn voru kjörnir: Frú Anna Eiríks-
dóttir, Selfossi, varaforinaður. Sigurður ísólfsson organleikari, varagjald-
keri. Kristinn Ingvarsson organleikari, vararitari. Sr. Sigurður Kristjáns-
son, Isafirði. Jakoli Tryggvason organleikari, Akureyri. Sr. Jakoh Ein-
arsson fyrrv. prófastur, Hofi. Páll Kr. Pálsson organleikari, Hafnarfirði.
Endurskoðendur reikninga voru kjörnir: Þórhallur Björnsson og Bald-
ur Pálmason og til vara. Páll Guðjónsson og Hálfdán Helgason, allir ur
Reykjavík.
Þá voru bornar upp tiltögur, sem fram liöfðu komið.
a. Tillaga Jóns Isleifssonar: Aðalfundur Kirkjukórasamhands íslands
24. 6. ’61 felur stjórn sinni og söngmálastjóra Þjóðkirkjunnar að fram-
fylgja áður samþykktri tillögu varðandi útvarpsþætti um söngfræðileg
efni fyrir kirkjukóra og safnaðarsöng. Fundurinn væntir þess, að Ríkis-
útvarpið taki þetta efni sem fastan liö í vetrardagskrá sína 1961—1962.
h. Frá sr. Magnúsi Guðmundssyni: Aðalfundur Kirkjukórasambands
íslands 1961, beinir þeim tilniæluni til stjórnar sambandsins, að hun