Kirkjuritið - 01.05.1962, Blaðsíða 47
KIRKJURITIÐ
189
Næ6ta kvöld talaöi frú Rósa B. Blöndal uin heimilið og kirkjuna. I'rú
Svanlaug Sigurlijörnsdóttir lék ó gítar, en frú Stefanía Gissurardóttir söng
einsöng.
I’riðja kvöldið liélt frú Anna Magnúsdótlir erindi uin heimilið og skól-
ann.
Áheyrendur voru niargir öll kvöldin.
Á Æskulýðsdegi Þjúökirkjunnar var formlega stofnað Æskulýðsfélag
Batreksfjarðarkirkju með 40 meðlimum á aldrinum 12 til 15 ára. Höfðu
áður verið haldnir fundir til að kynna markmið félagsins og undirbúa
stofnunina. Eru fundir nú haldnir vikulega undir leiðsögn sóknarprests-
ins, séra Tómasar Guðmundssonar.
Á I’atreksfirði er nýlokið Kirkjuviku, sem mjög var sótt. Erindi fluttu
Ágúst II. I’étursson, sveitarstjóri, er talaði uin efnið: „Er kirkja Krists í
hættu stödd?“, Ari Kristinsson, sýslumaður flulti erindi um lielgidagalög-
gjöfina, Steingrímur Gíslason, verzlunarmaðnr, flutli „Hugleiðingu um
kærleikann“ og sóknarpresturinn, séra Tómas Guðmundsson talaði um
ferminguna og fermingarundirbúninginn og kynnti starfið á Barnaheim-
ilinu að Sólheimum og ræddi um Sumarbúðir kirkjunnar og æskulýðsstarf
hennar. Kirkjukórinn undir stjórn Jóns Björnssonar organista kirkjunn-
ar söng öll kvöldin.
4 Pálmasunnudag var haldið mjög fjölinennt nemendamól í samkomu-
húsinu, Húnaveri. Er |>að annað slíkt kristilegt niót, sem lialdið er fyrir
•uigt fólk á svæði, sem nær yfir Bólstaðarhliðarhrepp, Engihlíðarlirepp og
Svínavatnshrepp í Æsustaðaprestakalli, Húnavatnssýslu og Seyluhrepp,
Lýtingsstaðahrepp, Rípurhrepp og Staðarhrepp í Skagafjarðarsýslu. Voru
mættir á nióti þessu 2 prestar, á annan tug kennara auk 50 fullorðinna, en
tala ungmenna og harna var á annað hundrað, þannig að mótið sóttu milli
170 og 180 gestir. Dagskrá mótsins var mjög vönduð og flutt af ungmenn-
unum sjálfum undir stjórn kennara og presta. Var m. a. fluttur þáttur um
sera Matthías Jochumsson af hörnum úr Rípurhreppi undir stjórn Lilju
-’igurðardóttur, kennslukonu, var fyrst rakin ævisaga þjóðskáldsins, en svo
flutt ljóð og sálmar eftir hann, sumt lesið, annað sungið eða flutt af talkór.
Kvenfélagskonur gáfu öllum veitingar, enda er mikill áhugi meðal for-
eldra harnanna á mótum þessum. en hið fyrra var haldið að Löngumýri
fehrúar s. 1. Stjórnandi mótsins var séra Jón Kr. ísfeld, en auk lians
töluðu séra Gunuar Gíslason og Ingihjörg Jóhannesdóttir, skólastjóri.
Séra Jakob Kristinsson varð áttræður 13. maí. Ilann er Eyfirðingur. Út-
skrifaðist úr guðfræðideildiuni 1914. Var síðan prestur mcðal íslendinga
'estan hafs í 5 ár. Forseti Islandsdeildar Guðspekifélagsins 1920—’28 og
attl þá heima í Reykjavík. Skólastjóri á Eiðum í 10 ár, fræðslumálastjóri í
finun ár.
Sannmenntaður og hið mesta göfugmenni. Málsnjall með afhrigðum,
prúður og vinsæll. Dáður áhrifamaður. Víðfeðmur og langskyggn, friðelsk-
andi, en óhvikull í fylgd sinni við það, sem hann hefur talið sannast og
féttast.