Kirkjuritið - 01.06.1962, Qupperneq 3

Kirkjuritið - 01.06.1962, Qupperneq 3
Séra Árelíus Níelssoní Kirkjan og unga fólkið 1961 „Æskan skapar ævi manns æskuvorsins draumar eru verndarenglar hans og ævikjarastraumar þESSI vísa, sem ég lærði áður en ég man eftir mér, bendir til þess, hve æskutímabil mannsævinnar getur verið þýðing- armikið fyrir lífsgæfu hvers manns. Og í sömu átt bendir spak- mælið forna: Án er ills gengis nema að heiman liafi. Það eru sögð og skrifuð mörg ásökunarorð um æsku nútím- ans. En það er raunar ekkert nýnæmi. Þar eruin við að minnsta Eosti ekkert frumlegri en löngu gengnar kynslóðir. Eldri kyn- slóðin virðist alltaf liafa ýmislegt að athuga við æskulýðinn. Þannig var það hjá Forn-Grikkjum og raunar ekki að ósekju. Og Lúther segir í útleggingu sinni af fjórða boðorðinu: „Allir kvarta vfir, að æskulýðurinn sé óhlýðinn og þekki hvorki ótta né skömm“. Og hann heldur áfram: „Hver er or- sökin til þess, að heimurinn er svo auðugur af tryggðleysi, éheiðarleika, synd og glæpum nú á dögum? Ætli orsökin liggi í því, að einn og sérhver heimtar að vera sinn eigin herra, frí °ft frjáls — og vill ekki heygja sig fyrir neinum, heldur gjöra aht, sem hann langar til og girnist“. Og Hallgrímur Pétursson er alveg á sama máli í sínum aldar- hætti, er hann segir: „Ungdómsins œSi, þótt áSur fyrr stœSi til afreka hárra losti, sjálfstœSi, leti, svefn ba>Si þaS lízt þeim nú skárra“ °ít hann bætir við í sama erindi: 16

x

Kirkjuritið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.