Kirkjuritið - 01.06.1962, Qupperneq 8

Kirkjuritið - 01.06.1962, Qupperneq 8
246 KIRKJURITIS Gæti ]ní verið nokkurt afl, sem sættir þessa ólíku heima? Hver gæti orðið vefarinn, sem samræmir fyrirvaf og uppi- stöðu, svo að af verði hin glæsilegasta voð farsældar og friðar lianda komandi kynslóðum? Er ekki öllu um velt, og liver súla brotin í þeirri menningarhöll, því musteri sem átti að hera mannkyn fram til friðar og frelsis? Leitast skal við að svara þessum spurningum. En fyrst verður að minna á nokkrar einfaldar staðreyndir og aðstæður. Gætu áhvggjur eldri kynslóðarinnar yfir æskulýðnum orðið skiljanlegar og sambærilegar við áhyggjur og misskilning eldri kynslóða á sínum æskulýð? Það liafa alltaf verið einhverjir, sem þótzt hafa sannfærðir um að virðingarlaus æskulýður hlyti að kippa linettinum af hraut sinni kringum sólina. Að sjálfsögðu er því þessi samanburður að mestu staðreynd og ekkert sérstakt að atliuga við undrun og áhyggjur nútím- ans. Það hefur alltaf verið til virðingarlaus æskulýður að dómi hinna fullorðnu. Og oft liefur æskan samt að einhverju leyti haft rétt fyrir sér í sínu virðingarleysi. En þó eru ýmsar aðstæður, orsakir og einkenni þessa virð- ingarleysis nú alveg sérstök fyrirhrigði í okkar sögu Islendinga að minnsta kosti. Það er nú fyrst og fremst að nefna liin miklu peningaráð og þar af leiðandi eyðslusemi æskulýðsins. Þessu má að sumu leyti fagna. Gott er að synir og dætur skuli ekki þurfa að lepja dauðann úr skel daglega eins og við þurftum að gera í æsku á tímum atvinnuleysis, kreppu og örbirgðar, að ekki sé nú litið lengra aftur í tímann til ára hungurs, drep- sótta og harðæris, þegar enginn sá pening nema höfðingjar, sem geymdu spesíur og dali í sokkbol og handraða. En hitt er jafnframt óneitanlegt, að þetta togleðurstyggjandi fólk með kók og pepsi freyðandi um varir er að mörgu leyti í nieiri hættu gagnvart því, sem nefna mætti að týna því hezta í sjálfum sér. Því ekki skal gleymt þeirri staðreynd að tyggi- gúmmídúsan og kókpelinn víkur oft fljótlega fyrir cigarett- um og svartadauða. Það cr sem sagt ekki hætt við dúsuna og pelann, en innihaldið hreytist. Og af þessu leiðir svo margt og mikilvægt höl og vandræði fyrir þetta unga glæsilega fólk með aura í höndum og krónur í vösum, að stundum liggur nærri að óska þess, að það hefði aldrei pening haft lianda á milli.

x

Kirkjuritið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.