Kirkjuritið - 01.06.1962, Page 12

Kirkjuritið - 01.06.1962, Page 12
250 KIRKJURITIB þrá og hrifningu, sem gefur byr uiulir vængi þeirra aiullegu krafta, sem lyfta okkur hæst“. Sú æska, sem þannig er lýst, gat verið virðingarlítil og óhlýðin gagnvart liinum eldri og örbirg af peningum, en samt rík með sjálfri sér. Ekki voru þessir draumar sízt um upp- byggingu eða gjörbyltingu á sviði félagslífs og stjórnmála. Nú er sá hugmyndaheimur hruninn að meira eða minna leyti, brunninn upp í logum styrjaldanna og orðinn tortryggilegur sem einveldisstefnur nútímans, sem eru frumþættir kalda stríðsins. Það er því naumast furða, þótt unga fólkið líti á okkur sem vesæla sjálfsblekkjendur, sem ekki sjái Iianda sinna skil og geti livorki greint stefnu né takmark svo að af viti sé. En þrátt fyrir allt, við áttum þó æskudrauma, sem kannske aldrei liafa rætzt, ef við erum lireinskilin. En þeir voru samt og komu fram sem trú á tilgang lífsins og samfélagsins. Og játning og kjarni þessara æskudrauma birtust í orðum Long- fellows, er hann segir: „Líf er vaka gimsteinn gœSa GuSi vigt en ekki mold“. Og viðleitni þessarar játningar í framhaldinu: „Frarti til starfa, fram til starfa flýjum aldrei skyldubraut“. En einmitt þarna er munur á nútíma æskunni mestur. Þetta glæsilega fólk, sem oft getur reynzt svo duglegt, framsækið og verklagið, byggt upp lieilar íbúðir og lieil borgarhverfi í frí- stundum sínum og gengið fram í krafti bæði á landi og sjó, það hlær að draumum og hugsjónum þeim, sem fyrri tíma æskulýður átti. Og að vissu leyti er það von. Þessar rómantísku draumsýnir hafa svo margar reynzt liillingar og blekkingar í hörðum átökum þessarar atomaldar, með styrjöldum sínum og eyðingu. Við munum tíma þegar fasismi, kommúnismi og nazismi gátu verið ungu fólki heilagar hugsjónir til að gera veruleika í samfélaginu. Nú vitum við ekkert viðbjóðslegra skammaryrði en nazismi og nazisti um verstu tegund heimsku og grimmdar, og sálarleysi og guðleysi kommúnismans ógnar frelsi og framtíð hins vestræna lieims, að flestra dómi.

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.