Kirkjuritið - 01.06.1962, Page 15

Kirkjuritið - 01.06.1962, Page 15
KIRKJURITIO 253 Þess vegna þarf kirkjan, að nema brott sínar kreddur, sem ekki eru framar í samræmi við líf og störf, mylja sundur öll steingerð form og slíta forna fjötra, fylgja kröfu meistara síns um að láta nýtt vín á nýja belgi táknlega sagt, sníða sér nú klæði eftir kröfum tímans, Jjótt hún bins vegar megi engu glata af gildi sínu og gersemum. Ljósið skal sett í ljósastikuna, svo að það lýsi öllum, sem í húsinu eru, öllum heiminum, öllu mannkyni. Kirkjan skal vera borg, sem stendur uppi á fjalli og fær ekki dulizt. Borg full af birtu og fegurð, lífi og starfi, með Iivítan sólroðinn belgidóm vígðan anda kærleiks og speki á hæsta tindi borgarinnar. Hvað sem skólarnir kunna að gera með stagli sínu og fræða- tíningi, þarf kirkjan að muna áminninguna, sem sr. Magnvis Helgason gaf nemendum sínum hér fyrri: „GerSu ei maSur gamalvísi graman pálma aS svörtu hrísi gjörSu ei loks meS lœrdómsgreinum lífsins brauS aS dauSum steinum“. Hver söfnuður í fjölmenni að minnsta kosti ætti að eiga sinn skóla t. d. kvöldskóla í kirkjunni eða safnaðarheimilinu, ]>ar sem kirkjan veitti uppeldi í siðgæði og andlegum Jjroska. Þetta ætti að vera með lýðskólasniði þar seni sögur og söng- ur, þjóðlegt og kristilegt efni skipaði öndvegið, þar sem lært væri fyrir lífið en ekki fyrst og fremst prófið. Kannske væru engin próf í venjulegri merkingu, en fvrst og fremst miðað við iðni, ástundun, trúmennsku og skilning á því, sem gott og fagurt er. Kirkjurnar ættu líka að eiga og nota sína samkomu- og sýn- ingarsali, þar sem góð og sönn gleði væri veitt undir leiðsögn félagslega mennlaðra stjórnenda, eins ættu J)ær að eiga sína leikvelli og íþróttasvæði. Kirkjan og ríkisvaldið ættu að leggja saman til að skapa og tnóta skemmtistaði, klúbba og danssali, sent að öllum þægind- um og glæsileika gætu keppt við vínsölustaðina. Og Jtar ætti unga fólkið að hafa tækifæri til að gleðjast saman og skemmta ser án áfengis og tóbaks. Eins og nú er hafa verið gerðar tilraunir með })etta bæði

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.