Kirkjuritið - 01.06.1962, Síða 18

Kirkjuritið - 01.06.1962, Síða 18
Gunnar Árnason: Söguleg tíðindi EINS og alkunnugt er, dró til mikilla tíðinda innan kirkjunn- ar á elleftu öld. Árið 1054 er talift' að algerzt liafi klofn- ingur, seni lengi haffti verið í aðsigi. Flestir kristnir menn í austurhluta Evrópu, Asíu og víðar neituðu þá afdrifa- laust yfirráðum Rómapáfa og hin svokallaða rétttrúnaðarkirkja — (oft nefnd grískkaþólska kirkjan) — sigldi sinn eigin sjó. Innan hennar eru all margar kirkjudeildir frá fornu fari, sem lúta hver sínum höfuðbiskupi, en þeirra á meðal var höfuð- biskupinn, patríarkinn í Konstantínopel lengst af primus inter pares þ. e. í forsæti án viðurkenndra yfirráða. Rússneska kirkj- an hefur jafnan verið með þeim fjölmennustu og áhrifamestu, en forn-kirkjurnar í Litlu-Asíu og eins gríska kirkjan einnig notið mikils álits. ^tmislegt skilur grísk-kaþólska menn og róm- versk-kaþólska. M. a. má nefna, að dulhyggjan er ríkari inn- an rétttrúnaðarkirkjunnar og meiri álierzla lögð þar á bræðra- lagið, samfélag allra, samsekt og samlíðan. Hvergi var sá skiln- ingur ríkari en innan rússnesku kirkjunnar svo sem bert er af Karamazovbrœðrum. Vegna hins lauslega sambands liinna austrænu kirkna hafa þær ekki haldið neitt sameiginlegt kirkjuþing síðan 1672 og þá í Jérúsalem. Einingaráhuga hefur þó gætt þar sem ann- ars staðar, sérstaklega á þessari öhl. Rættust því vonir margra góðra manna á síðastliðnu hausti, en þá tókst að kalla saman sameiginlega ráðstefnu liinna tólf meiri háttar rétttrúnaðar- kirkna, sem nú eru við líði. Var hún skoðuð sem undirbún- ingur forsynódu almenns kirkjuþings, er ætlun er að lialda fyrr en seinna í líkingu við Nikeu-kirkjuþingið 787, er mark- aði ein tímamót kirkjusögunnar. Kirkjuþing það, sem hér um ræðir, kom saman á Rhodusey.

x

Kirkjuritið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.