Kirkjuritið - 01.06.1962, Blaðsíða 21
KIRKJURITIÐ
259
þátttöku leikmanna í öllu kirkjulífinu“, „meiri notkun Gamla-
testamentisins við gu3sþjónu8tumar“, „umbótum á biskups-
kjöri“ og „aukið samband liinna einstöku kirkna sín á milli
og við almenna höfuðbiskupsstólinn“ í Konstantinópel.
Fellt var að fjalla um reglur þær, er gilda um bann við því
að klerkar í æðri stöðum megi kvænast.
Rætt var um livernig fært væri að koma á nánari tengslum
við „gamal-kaþólska“ og anglíönsku kirkjurnar -—- og lögð
áherzla á að tengslin við vesturkirkjuna hefðu aldrei að fullu
rofnað, enda skylt að allir kristnir menn stefndu að því að
vera eitt. Sérstaklega var fagnað áheyrnar fulltrúum, koptísku-,
eþíópsku-, armenísku-, sýrlenzku- og malabarísku-kirknanna
og rómað hversu viðræðurnar við þá liefðu reynzt gagnlegar.
Var þetta í fyrsta sinn eftir kirkjuþingið í Kalsedon 451 að
slíkar viðræður þessara kirkna liafa átt sér stað.
Var og ráðgert að stofna til frekari kvnna með gagn-
kvæmum heimsóknum kirkjunnar manna á næstunni. Má því ef
til vill vænta þess að liér kunni að verða upphaf að endursam-
einingu rétttrúnaðarkirkjunnar og hinna eldfornu austurlenzku
kirkna. En slíkt væri stórt skref í kristilega einingarátt.
Framanskráð er útdráttur úr fréttatilkynningu Alkirkjuráðs-
ins um þetta merka kirkjuþing á Rliodus. Og hér fer á eftir
«ávarp“ þess eða boðskapur í lauslegri þýðingu.
BOÐSKAPUR
kirkjuþings rétttriinafiarkirkjunnar á Rhodus
Elskaðir bræður og börn Guðs, náðin Drottins vors Jesú
Krists, sé með yður öllum.
Ivristi, vorum æðsta hirði, hefur þóknast að stefna oss sam-
an til fundar á þessari blessuðu Rhodusey. Ætlan vor er sú
að flvtja lieiminum svo ljóst, sem oss er unnt, boðskap vorrar
einu og óskiftu kirkju: auglýsa einingu vora og leggja oss fram
Uni að leysa af höndum hin sérstöku verkefni þessa kirkju-
þings og láta það ná tilætluðum árangri. I lok þessara sam-
funda vorra, sem Guð hefur svo ríkulega innblásið og blessað,
beinum vér orðum vorum til allra í andlegri auðmýkt og af
einlægum góðvilja.