Kirkjuritið - 01.06.1962, Qupperneq 23

Kirkjuritið - 01.06.1962, Qupperneq 23
KIRKJURITIÐ 261 Tákn tilvistar kirkjunnar í lieiminum er eining þess kær- leikssamfélags, sem er uppfylling hins „nýja boðorðs“ (Jóh. 13, 14) Drotlins vors. „Hans guðdómlegi máttur hefir veitt oss allt, sem heyrir til lífs og guðrækni með þekkiugunni á honum, sem kallaði oss með sinni eigin dýrð og dáð“. (2. Pét. 1, 3). „Kirkja vor er ekki steinbygging, lieldur trú og líf“. Sál hvers einstaklings er endursköpuð af Heilögum Anda innan kirkjunnar og með tilstyrk kirkjunnar. Og kirkjan boðar lieim- inum fagnaðarerindið um frið Krists og fullkomnun sáttar- gjörðarinnar eins og trúboðinn mikli, lieilagur Páll, orðar það (2. Kor. 5, 18). Aldrei höfum vér fremur en nú á dögum verið kallaðir til að framfylgja lögmáli Ivrists og hera liver annars byrðar og haga oss eins og oss ber „í Guðs liúsi, sem er söfnuður lifanda Guðs“. (1. Tím. 3, 15). Sú er sannfæring vor, að vér munum í nútíð og framtíð lialda þeirri sömu stefnu og kirkja vor hélt á hinum sögufrægu skeiðum sínum, þeirri stefnu, er miðar að uppbyggingu og varðveizlu hins sanna Kristslíkama OSS til endurlausnar, Guði til eignar og dýrð lians lil vegsemd- ar. (Ef. 1, 14). Oss er Ijós sú mikla ábyrgð, sem vér berum gagnvart Guði á sálum meðbræðranna, allra manna, þeirra, er lifa á jörð- unni og skapaðir eru af sömu rót. Yér liöldum áfram starfi voru í skjóli liinnar Einu, Heilögu, Almennu, Postullegu kirkju. í hlýðni við kærleiksboð Droltins vors og í nafni hans, áminnum vér yður alla, hræður vora, bæði fjær og nær, að „halda friði yðar á milli. (Mark. 9, 50). Varðveita frið Krists og frið Guðs vors, sem er æðri öllum skilningi. Bænir og lieit kirkna vorra liafa verið oss til styrktar og ellingar, livort lieldur prestanna eða safnaðarmeðlimanna alls staðar. Erum vér og upphaldendur og túlkar guðrækilegs anda þeirra. Vér fögnum og í hróðurást bræðrum vorum innan hinna fornu austurlenzku kirkna, sem vér um svo langan aldur höf- 11111 verið samlengdir bæði í hugsun og tilfinningu. Einnig fögnum vér hinum vestrænu bræðrum, sem vér liöfum aldrei slitið samstarfi við, til fullnaðar því boði Drottins vors, að »;dlir skuli vera eitt“, en þess biður kirkja vor óaflátanlega. í öllum þessum efnum beinum vér sjónum vorum til Jesú,

x

Kirkjuritið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.