Kirkjuritið - 01.06.1962, Qupperneq 25

Kirkjuritið - 01.06.1962, Qupperneq 25
Sára B jörn Jónsson: Séra Lárus Arnórsson á Miklabœ F. 29. apríl 11195. — D. 5. upril 1962. Þegar numið er staðar og litið yfir liðna tíð, þá munu flestir verða þessa áþreifanlega varir, hve myndir þeirra manna, sem við höfðum átt samleið með, eru misjafnlega skýrt mótaðar í vitund okkar. Þessi staðreynd verður mér svo áþreifanlegur veruleiki, þegar ég liorfi aftur til bernsku- og æskuáranna norður í Skaga- firði. Marga sveitunga mína úr Blöndulilíðinni man ég vel, en meðal þeirra er þó mynd eins, er stendur mér allra skýrast fyrir liugarsjónum og gnæfir þar öðrum ofar. — Það er mynd míns kæra vinar, stéttarbróður og fermingarföður, síra Lárusar Arnórssonar, sóknarprests að Miklabæ í Blönduhlíð. -— Mér er ljúft að minnast lians. En vel er mér Ijóst, að lífsferli lians verð'ur á engan hátt gerð verðug skil í stuttri minningargrein. Því niun ég aðeins draga fram örfáa helztu liöfuðdrætti lífs- sögu hans, sem ni'i liefur skráðan lokaþáttinn, eins og þeir líta út frá mínu sjónarmiði. 11 Séra Lárus Arnórsson fæddist að Hesti í Borgarfirði 29. apríl arið 1895. Foreldrar hans voru lijónin séra Arnór Þorláksson og frú Guðrún Elísabet Jónsdóttir. Þorlákur, faðir sr. Arnórs, var einnig prestur, síðast á Undirfelli. Sr. Þorlákur var borinn °fí harnfæddur Skagfirðingur, sonur Stefáns bónda að Sóllieim- nni í Blönduhlíð. Frú Guðrún á Hesli var ættuð úr Stafholts-

x

Kirkjuritið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.