Kirkjuritið - 01.06.1962, Síða 36
KIRKJURITIÐ
274
athuga, þótt kveðnir væru salmar um atóm og geimferðir —
Guð lífsins er hvarvetna og í öllu.
Merk framkvœmd
Einn góðviðrisdaginn, þegar mér var reikað niðnr að Reykja-
víkurhöfn, kom ég að liinu nýja lnisi, er opnað var í vor til
afnota fyrir hafnarverkamenn og sjómenn. Áður var, sem
kunnugt er, fremur óvistlegt verkamannaskýli í nánd við
höfnina og lítt þægindum húið. Þetta nýja þriggja hæða hús
er stílhreint og fagurt í einfaldleika sínum og svo snyrtilegt,
að litlitið eitt laðar vegfarandann. Ég brá mér fyrir forvitnis-
sakir inn fyrir og dáðist jafnt að fyrirkomulaginu sent því, er
þar stendur til hoða. Á neðstu hæð er rúmgóður livíldar- og
hressingarstaður, á miðhæðinni ákjósanlegur borðsalur og völ
góðra máltíða. Á efstu liæðinni allmörg gistiherbergi og prýði-
leg setustofa með bókum og útvarpi við hendina. Ut tim
gluggana fegursta útsýni í allar höfuðáttir.
Ég lief ekki komiö í erlend sjómannaheimili, en efast uni
að mörg standi þessu jafnfætis hvað J)á framar. Víst er að hæði
sjómennirnir og hafnarverkamennirnir eiga ])að skilið og eru
þess þurfandi að vel sé að þeim búið og að ])eir eigi kost slíks
griða- og greiðastaðar. En það er og særnd forráðamanna bæj-
arins að hafa leyst Jiessa nauðsyn svo vel, sem raun ber hér
vitni um. Þetta er áþreifanlegt menningartákn, sem skylt er
að gleðjast yfir.
Spurningar og svör
Ég hef lengi haft löngun til að stofna til nýs þáttar hér í
ritinu í líkingu við það, sem tíðkast í mörgum blöðum og
tímaritum. Þar bera lesendur upp ákveðnar spurningar, ör-
stuttar, Iielzt ekki rneira en tvær þrjár línur. T. d.: Hvað er
þrenningarlærdómur? Hverjar eru deildir kristinnar kirkju?
Hverjar eru höfuðdyggðirnar?
Þessu yrði síðan að svara í afar takmörkuðu rúmi, aðeins a
einni, eða í mesta lagi tveim blaðsíðum.
Svarendur væru fastráðnir, lielzt þrír. Mér hefur dottið i
hug að einn væri starfandi prestur, annar guðfræðiprófessor,
Jiriðji æskulýðsleiðtogi eða einliver forystumaður í félagsmál-
um. Ég get ])essa hér af því að ég vildi gjarnan vita hvort