Kirkjuritið - 01.06.1962, Qupperneq 38

Kirkjuritið - 01.06.1962, Qupperneq 38
Gunnar Arnasort : Ingibjörg Ólafsson T¥Á lilíð, sem í kvöldkyrrum roðahjúpi teygir sig frá ströngu jökulfljóti mót bláheiðum himni — sú var táknmynd liug- lirifa minna við andlátsfregn fröken Ingibjargar Ólafsson. •— Fundum okkar bar aðeins einu sinni sarnan á lífsleiðinni, og ekki nema eina eða tvær klukkustundir. Þegar ég hafði lokið guðfræðiprófi fór ég námsferð til Norðurlanda og lagði þá mesta stund á að kynna mér kirkjulífið. Sóttist þess vegna eftir að komast í nokkur kynni við kennimenn, sem þá létu helzt til sín taka. Fyrir leiðbeiningu séra Sigurbjarnar Á. Gíslason- ar leitaði ég aðstoðar fröken Ingibjargar Ólafsson til þessara lduta. Hún var þá aðalframkvæmdastjóri KFUK á Norður- löndum. Og eins og á augabragði opnaði liún mér dyr nokk- urra biskupa og lieimili ýmissa presta. Varð ekki um það villzt að orð bennar voru beztu nteðmælin, sem maður gat liaft upp á vasann til þess að norrænir kennimenn og kristnir forystu- menn tækju manni opnum örmum. Allir þekktu þeir liana og virtu. Það fannst líka og sást við fyrstu sýn, lvvílík bún var: kona mikil af sjálfri sér, göfug að eðli, gagnmenntuð, sjálftamin — og skírð í eldi. En blær liennar, eins og lilíðarinnar. stafaði af æðri álirif- um. Hún var ein þeirra, sem bar með sér kristindóminn livar sem bún fór og jafnvel þótt hún þegði. Hún mun aldrei bafa verið bneigð til margorðra játninga, en liún lét sér þeim mun annarra um að starfa að eflingu kristinna ábrifa og vinna að framgangi kristilegra mála •—- einkum meðal kvenna.

x

Kirkjuritið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.