Kirkjuritið - 01.06.1962, Page 45

Kirkjuritið - 01.06.1962, Page 45
KIRKJURITIB 283 Á árinu 1958 gaf Guðmundur Ólafsson hóndi í Litlulilíð 500 hr. í Goðdalasjóð, til minnihgar um konu sína Ólínu Sveins- dóttur ljósmóður. Goðdalasjóður er eign Goðdala- og Árbæjar- kirkna og ávaxtast í Söfnunarsjóði. Hann nemur nú kr. 3155. Allar þessar stórmannlegu gjafir vil ég þakka af lieilum hug, fyrir liönd safnaðarins. Meðal Jjessara gefenda eru sumir ni'i búsettir í fjarlægð og hafa engum skyldum að gegna við Goðdalakirkjn. Sú ræktarsemi við æskustöðvar, sem }>ar kem- ur fram, er virðingarverð og til eftirhreytni. Gjafir þessa fólks hera fagurt vitni um }>að, hver áhrif kristin trú liefur liaft á æskuheimilum þeirra. Ég vil nota þetta tækifæri til að þakka Guðmundi Ólafssyni hónda í Litluhlíð fyrir óeigingjörn störf vegna Goðdalasafnað- ur. Hann var forsöngvari um 40 ára skeið og alllengi formaður sóknarnefndar og safnaðarfvdltrúi. Sízt vil ég gleyma að þakka Moniku Sveinsdóttur húsfreyju í Goðdölum. Ég vil þakka störf hennar fyrir kirkjuna í 24 ár og gjafir. Fyrir nokkrum árum gaf hún gólfdregla og í dag hefur hún gefið horð undir skírnarskál. Nú á tímum Iieyrist oft um það rætt, að fækka prestum í dreifbýli og stundum eru kirkjur lagðar niður eða færðar úr stað. Það er ósk mín og von, að þegar kirkja sú, sem nú hefur verið endurbætt, liefur endað sitt skeið, verði liún ekki lögð niður, heldur liafi Goðdalasöfnuður metnað og manndóm til að endurreisa liana. Megi hljómur kirkjuklukkunnar herast um þennan dal í aldir fram. N.B.: Altarisbrík er málverk af Kristi og postulunum við kvöldmál- tiðarborðið. — Viðgerðarkostnaður varð rúmar 88 þús. kr. Deilur slæðu aldrei lengi ef aðeins annar aðilinn bcfði rangt fyrir sér. Heldur tala ínenn illa uni sjálfa sig en alls ekki neitt. ■A Vér getum fyrirgefið þeim, sem mannskenmia oss, en alls ekki liinum sem vér mannskemmum sjálfir. — La Rochefoucauld.

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.