Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.10.1970, Qupperneq 10

Kirkjuritið - 01.10.1970, Qupperneq 10
344 KIRKJURITIÐ skýrði frá málavöxtum. Lögregluþjónniim ráðlagði lionum að kalla og bjóða drengjunum pening, liverjum sem vildi sækja hann. Og drengirnir streymdu að, þangað til komnir voru 73. Nú gátu veizluklæddu mennirnir ekki efast lengur. Þeir opn- uðu pyngjur sínar þegar í stað og lögðu fram talsvert fé, svo að Barnardo gæti tekið þegar í stað til starfa. Og liann lét ekki standa á sér, en hófst handa. Hann stofnaði nokkurs konar lieimili og bjó það út eftir föngum. Síðan fór liann út á stræti og gatnamót og safnaði saman drengjum. Og fyrsta kvöldið sátu 25 drengir við borðið lijá honum. Síðar taldi liann þetta kvöld liafa verið sitt dásamlegasta kvöld, sein hann hefði lifað. Starfið var liafið. Þetta gerðist á árinu 1866, þegar fyrsta drengjalieimili Barnardos var raunverulega opn- að. VII. Kínaförin var nú ekki lengur nefnd á nafn. Lífsstarfið var liafið. Framvegis skyldi Barnardo lielga líf sitt drengjunum í Lundúnaborg, sem þörfnuðust hjálpar. Stofnunin tók stakkaskiptum, stækkaði og færði út kvíarnar örar en mesta bjartsýni liefði getað áætlað. En Barnardo varð það fljótlega Ijóst, að það voru ekki ein- vörðungu drengirnir, sem þörfnuðust hjálpar. Gífurlegur f jöldi stiilkubama ráfaði um göturnar í algerðu bjargarleysi og öm- urleika. Þess vegna stefndi Barnardo að því, að stofnað yrði lieimili fyrir stúlkubörn. Heimili drengjanna liafði fyrst verið stofnað í Stepney 1866. Þar ætlaði Barnardo að stofna stúlkna- heimilið. En það var ekki fyrr en á árinu 1872, sem Barnardo gat opnað fyrsta stúlknaheimilið, ekki langt frá fyrsta drengjm heimilinu. Nú var svo komið, að bæði drengjum og stúlkum, hraustum og sjúkum, var liægt að veita viðtöku. Hjúkrunarkonur önn- uðust þau börn, sem þurftu lijúkrunar með, en valdir kenn- arar kenndu þeim bömum, sem eitthvað gátu lært. Mörg börnin vora raunar svo farin að heilsu, þegar þeim var veitt viðtaka, að þau urðu ekki læknuð. Venjulegast voru þau svoim illa farin vegna langvarandi lmngurs eða vegna slæmrar með- ferðar. Mörg þessarra barna dóu fljótlega, sum liresstust nokk- uð, en létust svo. Allmörg börn urðu öryrkjar alla ævi. En

x

Kirkjuritið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.