Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.10.1970, Qupperneq 12

Kirkjuritið - 01.10.1970, Qupperneq 12
346 KIRKJURITIÐ IX. Ógnlegt er að lesa sumar lýsingarnar á því, hvernig börnin voru útlítandi á líkama og sál, þegar þeim var veitt viðtaka. Mörg voru þau munaðarleysingjar, sem enga fræðslu liöfðu fengið. 10 ára piltur vissi ekki mun á Guði og páfanum, 18 ára piltur þekkti ekki stafina og gat aðeins talið upp að 6, auðsjáanlega enga fræðslu fengið í skóla. Þegar börn eru tekin á stofnanirnar, er ekki tekið neitt tillit til trúarbragða eða litarlníttar. Ef þau eru þurfandi, er þeim veitt viðtaka. Ekki eru aðeins tekin stálpuð börn, heldur einn- ing ungbörn, jafnvel fárra daga gömul. Fáeinar töhir sýna, liversu vel starfsemi barnavinarins Barn- ardo blómgaðist. Fyrsta starfsárið (1866) voru tekjurnar 3875 krónur, 1870 voru þær 43.722 krónur, 1905 voru þær 3,8 millj- ónir króna, 1907 voru þær 4 milljónir, en 1952 37 milljónir. 1866—1953 liöfðu farið frá Barnardo-stofnununum 143.000 börn. Barnardo lézt 19. september 1905 af hjartaslagi. títför lians fór fram með mikilli viðböfn og fylgdi lionum til grafarinnar gífurlegur fjöldi þeirra, sem liann liafði komið til manns. Yið útför lians sást greinilega, bversu elskaður og virtur liann var, þessi frábæri mannvinur. Hann gat vissulega á síðustu ævidögum sínum litið yfir stórfenglegt lífsstarf. Þá böfðu yfir 60.000 börn dvalið á barna- lieimilum bans. Ablrei hafði liann þurft að nota vöndinn og aldrei beitt þvingunum. Hann liafði farið að öllum með góðu og þannig kallað liið góða fram í sálum þeirra. Hann bafði stuðlað að því, að sérhver unglingur fengi það starf, sem lion- um hentaði bezt. Þannig bafði börnunum verið kennd bin margvíslegustu störf, fyrst þó aðallega landbúnaðarstörf. En Barnardo sá svo um, að hver fengi að liafa svo mikið frelsi, sem frekast var unnt. Oft varð Barnardo að grípa til mælsku sinnar, til þess að afla stofnunum sínum tekna. En þegar það dugði ekki, greip bann pennann og sýndi þá snilli sína að mæla fyrir stofnunun- um. t því skyni gaf bann út tímarit og mýmörg flugrit. Oft varð hann að leggja hart að sér, til þess að vinna fyrir börn- unum sínum. En liann taldi slíkt ekki eftir sér, þó að vöku- næturnar yrðu margar.

x

Kirkjuritið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.