Kirkjuritið - 01.10.1970, Qupperneq 30
364
KIRKJURITIÐ
neapolis í Bandaríkjunum 1957, fjórSa í Helsinki í Finnlandi
1963, og hið fimmta í Evian í Frakklandi dagana 14.—24.
júlí eins og áður er sagt.
Reyndar átti þetta alheimsþing að vera á allt öðrum stað
og annarri heimsálfu, í Brasilíu í Suður-Ameríku, og þar liafði
þingið verið undirbúið í bænum Porto Allegre. Það var ekki
fyrr en 5. júní sl. að tekin var sú ákvörðun að flytja þingið
til Evrópu. Og þessi breyting setti svip sinn á þingstörfin i
byrjun, enda var liér um að ræða mikla breytingu af mjög
erfiðum og óvenjulegum ástæðum.
III. Sendir út í heiminn
Það var talið, að við það stjórnarfar og það öryggisleysi, sem
nú ríkir í Brasilíu myndi þingið ekki fá nægilegt frelsi til
að starfa. Fjölmennar kirkjudeildir í Evrópu höfðu þeg»r
tilkynnt að þær myndu ekki senda fulltrúa, ef þingið yrði
þar. f upphafi þingsins kom í ljós, að ekki voru allir á eitt
sáttir um að þingstaðnum var breytt og sumir töldu, að það
Iiefði átt að vera í Brasilíu þrátt fyrir allt.
Fram komu eindregin mótmæli gegn kúgun og harðstjórn 1
Brasilíu. Þar virðist ríkja mikil neyð og almenn mannréttindi
að engu böfð. Yfirleitt voru vandamálin í heiminum nijog
á dagskrá, og þá kom það glöggt í Ijós, að skorturinn er víða
geigvænlegur, bilið mikið milli liinna ríku og fátæku, kyn-
Jiáttavandamálið er stórt, og kúgun heilla þjóða hörmuleg
staðreynd.
Umræður um þessi mál tóku mikinn hluta þeirra ellefu
daga, sem þingið stóð og það jafnvel svo, að um guðfræðina
var minna talað, enda var liöfuðefni þingsins, eða yfirskrift
þess, svohljóðandi: Sendir út í heiminn.
IV. Minna af guSfrœSinni
Hverju þingi hafa verið valin sérstök kjörorð til þess að niarka
stefnu þeirra og umræðugrundvöll. Þessu þingi var gefið til
umræðu og athugunar, það sem Kristur setti fram í bæn sinUU
þar sem lnin er skráð í Jóliannesarguðspjalli 17. kafla, er hanO
biður til Guðs og segir:
„Eins og þú hefur sent mig í heiminn, hef ég líka sent þa
lit í lieiminn.“ Hér er liann að tala um lærisveina sína, sem