Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.12.1974, Page 92

Kirkjuritið - 01.12.1974, Page 92
sakramentisins. Sakramentið vœri full- gilt ón trúar. Öll kenning þeirra mót- aðist þannig af þeirri hugsun, að prest- urinn framkvœmdi breytingu með fórninni). Lúther leggur óherzlu ó raunveru- lega nólœgð Krists (real presens) í sakramentinu þegar i upphafi. En hann leggst gegn kenningunni um gjörbreytingu efnanna (transubstanti- atio, oft nefnd eðlisbreytingarkenning- in) með framsetningu sinni ó sam- eðliskenningunni (consubstantiatio, þ. e., að Kristur sé í, með og undir brauði og víni). Þessi kenning Lúthers kemur fyrst fram í riti hans ,,Um Babýlóníuher- leiðingu kirkjunnar". Þar fullyrðir hann, að líkami og blóð Krists séu nólœg í óumbreyttu brauði og vini. I bréfi skrifuðu 1524 jótar Lúther, að í deilunum við Rómarkirkjuna hafi komið að sér sú freisting, að túlka innsetningarorðin ó tóknrœnan hótt. Þó hafi hinn greinilegi texti innsetn- ingarorðanna forðað sér fró því. Þess vegna segir hann líka, að miklu rétt- ara sé að drekka blóð með pófanum en aðeins vín með vingltrúarmönnun- um. ( riti um kvöldmóltíðina fró 1519 segir Lúther: „Þegar við etum brauð- ið og drekkum vínið breytist það inni í okkur." Hann leggur þó mikla óherzlu ó „sakramenti kcerleikans", þ, e. „communio". Kenning hans um kirkjuna sem samfélag heilagra, „communio sanctorum", byggir svo ó þeim grunni. Þessir óþreifanlegu hlut- ir, brauð og vín sannfœra okkur um, að við tilheyrum andlegum líkama Krists, nóðarsamfélaginu. Þarna hefur llkami og blóð nokkuð tóknrœna merkingu. En kenning Lúthers þróast ófram. Árið 1520 kemur út annað rit um kvöldmóltíðina. Þar leggur Lúther óherzlu ó, að meginatriðið í sakra- mentinu sé loforð Guðs, sem ávallt er um fyrirgefningu syndanna. Inn- setningarorðin eru það, sem skiptir mestu máli. Lúther segir, að innsetn- ing kvöldmáltíðarinnar sé hinzti vilji Jesú. Innihald þess sakramentis er fyrirgefning syndanna og eilíft líf- Samkvœmt því skiptir mestu máli fra hlið mannsins, að taka við þvl í tru. Kristur skilur eftir líkama sinn og b'óð sem tákn um fyrirgefningu syndanno og til að styrkja trúna. Mikilvcegi hinn- ar raunverulegu nálœgðar (real pres- ens) Krists í kvöldmáltíðinni, liggur 1 því, að líkami og brauð eru tákn fyrir- heitisins um fyrirgefningu sydanna. Menn þurfa á einhverju slíku tákm að halda ásamt orðinu. Þess vegno setur Jesús brauð og vín sem ytn merki, tákn um blóð og líkama. I inn' setningarorðunum felst nákvœmleg0 allt það, sem þau fjalla um. Að endanlegri niðurstöðu um kvöld- máltíðina komst svo Lúther á árunum 1527—28. Hann skrifar „Gegn hinum himnesku spámönnum" árið l52u- Þar leggur hann mikla áherzlu á raun- verulega nálœgð (real presens), e° lýsir samt sakramentinu sem „íagnað' arerindinu". Syndarar, sem iðrast, skulu fara og fá styrk, ekki vegnCI brauðs og víns eða líkama og blóð5 heldur vegna orðsins, sem í sakra- mentinu er sett fram og gefur líkama og blóð Krists, sem úthellt er fyr'1 syndarann. 378

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.