Jörð - 01.07.1944, Side 12

Jörð - 01.07.1944, Side 12
leggi eyrun við slíkum boðskap og hvatarorðum? Er nokk- ur furða þótt í hóp hennar sé nú byrjað að örla á gamla ógiftusamlega kjörorðinu, sem forðum boðaði upplausn liins forna Rómaveldis? — kjörorðinu: panem et circenses! — „brauð og leiki!“? Gr HEF, kæru áheyrendur, svarað öllum þessum spurn- ingum fyrir mig, og ég býst við, að þér liafið þegar svarað þeim fvrir yður. Ef svör yðar og skoðanir skyldu nú vera hinar sömu og mínar — þær, að stjórnmála- og fé- lagsmálabarátta þjóðar vorrar á hinum síðustu tímum beri þess ótvíræð merki, að andi Sturlungaaldarinnar sé að ná vaxandi tökum á þjóðinni og leiðtogum hennar — liinn forni andi sundrungar, upplausnar og guðleysis — sá andi, sem varð þess vaklandi, að liið forna þjóðveldi glataði sjálfstæði sínu - niunum vér þá ekki öll fallast á, að það sé óviðeigandi fvrir oss, að setjast nú niður við að flélta sigursveiga? að minnsta kosti á höfuð vor? NT EIGUM vér þá að láta þennan dag bera svip kvíða ogvonleysis? Eigum vér að fara að brégða upp dökk- um myndum á framtíðarbimni þjóðarinnar? Eigum vér að flytja feigðarspár yfir sjálfstæði hins nýfædda lýðveldis? Nei. — En oss ber samt í dag að gera þá játningu frammi fgrir Guði, sem tcxli vor áminnti oss um — og vér böfum nú gert. Öll þjóðin þarf að gera þá játningu. — Vér verð- um öll að gera oss það vel ljóst, að sjálfstæði bins nýfædda lýðveldis vors er í mikilli hættu þegar frá þess fyrsta degi. — Og að þess mesta bætta stafar frá því, að vér eigum enn óháða mjög erfiða baráttu — erfiðustu baráttuna, sem mennirnir heyja — baráttuna við sjálfa oss — baráttuna við eigingirnina, við bin skannndrægu stundarsjónarmið vor og við hin tvistrandi öfl eðlis vors. Vér þurfum að lála oss skiljast, að ef vér vinnum ekki sigur í þeirri baráttu, er engin von um það, að þjóðin 1‘ái í framtíðinni varðveitt sjálfstæði sitt. En vér verðum þá líka að gera oss ljóst, að vér vinniun ekki þann sigur nema vér þiggjum leiðsögn 154 jörð

x

Jörð

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Jörð
https://timarit.is/publication/467

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.