Jörð - 01.07.1944, Page 18

Jörð - 01.07.1944, Page 18
Og hvort. mundi liinn marghrakti öreigi, Bólu-Hjálmar, hundeltur af lögum og rétti, hafa orðið gneypur við grana- brettum erlendra mangara, þar eð hann sagði við guð sinn og skapara: En viljirðu ekki orð mín lieyra, eilíf náðin guðdómlig, skal mitt hróp af heitum dreyra himinin rjúfa kringum þig. Þeir menn, sem svo hátt virtu það, sem þeir unnu heit- ast i þessu lífi, alþýðumenn á Islandi norður, sem lifðu við skort, skilningsleysi og rangsleitni, livort mundu þeir ekki sanna orðin Kasks, þau, að islenzkar bókmenntir og andi islenzkunnar geti verið þess megnugur að útrýma „kotungs- og kúgunaranda" og gefa mönnum metnað fyrir sig og þjóð sina og ást á andlegum verðmælum liennar? Ég er ekki ennþá kominn að Jóni forseta Sigurðssyni í þessu ræðukorni, en það er ekki fyrir þær sakir, að mér þyki vegur iians eða verðleikar minni en öðrum, heldur veldur hitt, að mér þætti það miklu máli skipta, ef ég í dag mætti gera öllum skiljanlegt, þeim er á mig lilýða — og ekki kynnu að hafa liugleitt það áður — livað það er, sem gerði honum og hinum frægu Fjölnismönnum og öðrum vekjendum og aflvökum þessarar þjóðar það fært að vinna þau stórvirki, sem þeir unnu, og hvað okkur ber svo samkvæmt því að vernda og hvernig okkur að luiga gagnvart þeim þjóðum, sem fjölmennari eru og' auðugri. Og enn vildi ég minnast á einn mann, sem ég lel, að sýni okkur þetta mjög gjörla. Ekki virðist mér síður vert að minnast lians hér vegna þess, að hann var Vestfirðingur og hefur hingað til verið vanmetinn og lians vangetið. Þarna á ég við Jón Þorláksson úr Selárdal i Arnarfirði — og lengi prest á Bægisá í Eyjafirði, en útgáfu ljóðmæla hans önn- uðust Jón Sigurðsson og Jónas Hallgrímsson, og Jón skrif- aði ævisögu lians framan við útgáfuna. .Tón Þorláksson var gott skáld og hezt á sinni tið á frumort kvæði, en ekki marka þau nein tímamót. Hins vegar réðst hann í að 160 JÖRD

x

Jörð

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Jörð
https://timarit.is/publication/467

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.