Jörð - 01.07.1944, Síða 24

Jörð - 01.07.1944, Síða 24
að vekja athygli á framleiðslu okkar og rétti til lífsins. Hvað segir þú? Skyldum við ekki glúpna fyrir stórþjóð- unum? Nei, til þess er engin ástæða, ef friðsamleg þróun á sér stað. Þjóðirnar mælast þá eftir verðleikum sínum, lxámenningu þeirra, alþýðumenningu þeirra, verklegum þroska þeirra um nytjun landsgæða og vöndun framleiðsl- unnar. Ég hef orðið var við slikt mat á íslendingum. í ferðum mínum til útlanda hitti ég menntaða menn, sem kunnu góð skil á menningu okkar, en liöfðu alls ekki at- lmgað, að' við værum nokkuð verulega mannfærri en liin- ar Norðurlandaþjóðirnar. Þegar þeir lieyrðu þess getið, iive fáir við værum, þá setlu þeir upp mjög stór augu, og þá fannst þeim við vera eilt af undrum veraldar. Siíkt er mat þeirra manna, sem miða við manngildið en ekki höfðatöluna, við hið menningarlega gildi þjóðanna, én ekki iiið hernaðarlega. En verði skeggöld og skálmöld, sitji þjóðirnar á svikráðum iiver við aðra og leiti allra hragða til að véla liver aðra og veikja undir vopnuð átök — hræðilegri, já, margfalt ógurlegri en nokkurn hefur órað fyrir, þá er ekkert að gera — og þó! Eitt getum við gert, einu getum við heilið á þessum degi, þessum mikla degi, stofndegi lýðveldis á íslandi og fæðingardegi okkar mesta manns, heitið að standa upp í haus anda og segja: „Við mótmælum allir . .. .“ En svo .... svo eru það orð þeirra Ingjalds í Ilergilsey: „Ek liefi vánd klæði ....“ eða Hallgrims Pétnrssonar: „Kom þú sæll, jægar þú vilt“ — „því svo kunna þó ekki clónar að deyja.“ En .... en ef við nú glúpnuðum, gengjumst upp við erlent fé og erlendan fagurgala, yrðum mútuþegar og eftirhermur, ef til vill að vilja útlendra atvinnumanna i fjármálum, at- vinnumálum og stjórnmálum? Nei, því vil ég ekki gera ráð fvrir, því að þá dæi menningin, lýðveldið og þjóðin, þó að einstaklingarnir tórðu, asnar, sem upp i væri hnýtt, eða ambáttir, sem gull kynnu að mala. Nei, strengjum þess heit — strengjum þess heit, segi ég — og leggjum við nafn alls hins bezta, guðs almáttugs, ís- 166 jörð

x

Jörð

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Jörð
https://timarit.is/publication/467

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.