Jörð - 01.07.1944, Síða 28

Jörð - 01.07.1944, Síða 28
samkvæmt því, þegar hann heldur, að sér sé það óhætt. Hann er illkvittinn við þá, sem hann þorir til við, og ræðst jafnan á garðinn þar, sem hann er lægstur. Hann er alltaf á þönum eftir því, livað almenningur muni lmgsa, halda og segja um liann, og hann er eins og hundarnir alltaf með þeim, sem sterkari reynisl. Frjáls maður hvorki snuðrar né livíslar, en segir mein- ingu sína skýrt og liiklaust, hver sem í hlut á. Hann ætlar engum iilt að óreyndu, en er ósmeykur við árásir, því lxann hefur sjálfur lireint mél i pokanum. Hann á sjálfs- virðingu og öfundar því engan, né þarf að niðurlægja aðra sér til uppliefðar. Hann þekkir gleðina og þarf því ekki á liáði að halda. Hann hefur heilbrigða samúð með mann- eskjum og öðlast því skopskyn í stað meinfýsni. Ilann gengur framan að andstæðingum sínum í haráttu, en fyrir- lítur launsát. Hann hreytir samkvæmt samvizku sinni, án tillits til aimenningsálitsins, en er fámáll um syndir ann- arra og er vægur í dómum um mannlegan breyzkleika. Hann her sig vel í raunum og kann að þola harma, en finnur til með meðbræðrum sinum, er í ógæfu rata, og reynir að hjálpa þeim. Hann fleiprar ekki og fer ekki með slaður. Hann er mildur þeim, sem minnimáttar eru, því hann er gæddur ábyrgðartilfinningu og verndarvilja karl- mennskunnar gagnvart því, sem veikt er og lítilsmegandi. Hann er vinnr vina sinna, hvað sem i skersl, en flaðrar ekki fyrir neinum. Hann er kurteis og prúður í hugsun og fram- komu en hefur andstyggð á hroka og steigurlæti, því hann á hið sanna stollt. Honum stendur á sama um, hvað al- menningur hugsar og heldur og' segir um hann, því liann á frið við sjálfan sig og hreytir eins og hann veit réttast. Vér þurfum að íliuga gaumgæfilega í livorn flokkinn vér viljum ski])a oss, — og hegða oss samkvæmt því. VÉR Islendi ngar erum meðal þjóðanna i svipuðum met- um og lifandi skáld, innlent, er meðal Islendinga. Vér erum lítt þekktir og hehlur lítils metnir, en njótum þó sannmælis nokkurra mætra manna. En álit umheimsins 170 JÖRÐ

x

Jörð

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Jörð
https://timarit.is/publication/467

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.