Jörð - 01.07.1944, Page 30

Jörð - 01.07.1944, Page 30
Páll V. G. Kolka: Lýðveld isljóð Lýsi fögur frelsissól fjaUatind og eyjasund, faðmi öll hin byggðu ból, blessað land, á þinni grund, veri barni vöggngjöf, veki blóm á dauðra gröf. Feðratungan forn og snjöll, felld í skorður ríms og máls, hrein og skær sem haustsins mjöll, lilý sem geislar arinbáls, bergmál seiði úr hamrahlíð, hljómi um fiskimiðin víð. Hver í sinni slöðu og stétt styðji lands og þjóðar hag. Verndum íslands óðalsrétt einum huga, nótt sem dag. Frjáis sé lund og frjáls sé mund fram á vora hinnslu stund. Saga lands vors öld af öld arfinn helga geyma skal. Þó að hylji tímans tjöld týndar grafir, fallinn val, Fáni Íslands, frjáls á stöng, frægður skal í Ijóði og söng. 172 JÖRÐ

x

Jörð

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Jörð
https://timarit.is/publication/467

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.