Jörð - 01.07.1944, Síða 38

Jörð - 01.07.1944, Síða 38
Fornbókmenntirnar liafa ætíð verið sá brunnur, sem þjóð- in hefur getað úr ausið og haldið öllu limi tungunnar grænu, hverjir niðliöggar sem hafa nagað ræturnar. ÍÐHÖGGAR málsskemmdanna hafa jafnan komið utan -k * úl' löndum. Eftir Sturlungaöld náði kaþólska kirkjan meira valdi yfir liugum manna. Helzta hugsjón hennar var að „guðslög“ væru ofar manna lögum. Guðslög hennar voru söm um heim allan. Mannkynið allt skyldi vera ein Iijörð með einn hirði, eitt ríki, guðsríki páfáns, og eitt tungumál þess guðsrikis, Latínuna. Það leiddi af sjálfu sér, að allt, sem aðgreindi þjóðirnar, var hákaþólskum klerkum andstætt, og ekkert aðgreindi þær framar en þjóð- tungurnar, enda rcðu lderkar því, að liinar lifandi þjóð- tungur urðu ekki bókmál víða um lönd, fvrr en vald Kirkj- unnar fór að þrjóta. En Islenzkan varð ekki alveg laus undan valdi klerkanna, vöndun málsins minnkaði, erlendra áhrifa tók að gæta miklu meira. Munkarnir rituðu bisk- upasögur og helgra manna sögur með miklu meiri mærð og orðflaumi en áður var títt. íslenzkan varð fvrir skenimd- aráhrifum eigi aðeins frá Latínu, heldur einnig frá Þýzku og öðrum málum. Þó eru allir þeir, sem hezt rita: og lifað hafa öldum saman á vörum þjóðarinnar, íslenzkir i anda, þótt einstök orð séu hlendin. Á 18. öld kemur enn ný alda til landsins, sem veldur málspjöllum. Náttúruvísindin höfðu farið sigurför um heiminn. Margar hégiljur höfðu verið niður kveðnar. En öfgar þeirra aldar voru efnishyggja sú, er nefndist skyn- semistrú, og er Magnús Stephensen kunnastur fulltrúi hennar hérlendis. Eins og öll önnur efnisliyggja, leil skyn- semistrúin hagrænum augum á lífið, en sást yfir gildi and- legra verðmæta. Fylgjendur hennar voru alþjóðlegir og' hirtu litt um erfðavenjur, þjóðtrú og þjóðtungur. Þannig voru „skynsemistrúarmenn“ hérlendis danskir og þýzkir í máli, og réð mál þeirra, hin aumasta Islenzka, lögum og lofum um 1800. Fjölnismenn og Sveinbjörn Egilsson tóku við Iiinu íslenzka hókmáli í hinum verstu tötrum, en skil- 180 jökð

x

Jörð

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Jörð
https://timarit.is/publication/467

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.