Jörð - 01.07.1944, Side 40

Jörð - 01.07.1944, Side 40
en þá, sem játa þær að öllu. Þannig er þessu einnig varið nú. Þjóðernisleysi öfgaflokkanna sýkir að nokkuru alla æskuna, þó að hún að mestu telji sig þeim andstæða. Að- eins hinir sterkustu eru alveg ósnortnir af þeirri miklu málsspillingaröldu, sem hin nýja efnishyggja hefur flutt inn í landið. Mikill fjöldi „skálda“ fær prentuð ljóð sín og sögur, en fáir ná þeim gullaldarstil, sem setti svip sinn á bókmenntir 19. aldar. Urmull bóka er þýddur og meiri lilutinn á mjög lélega íslenzku. Blaðamenn ná nú engir upp úr mollukáfi meðalmennskunnar að stílgáfu, en hroð- virknin keyrir fram úr öllu liófi. Stingur þetla mest i stúf við það sem áður var, og er þeim mun skaðlegra, sem blöðin eru að verða aðalleslur og andans fæða margra. Mbl. er jafn sjálfsagt og morgundrykkur. Að vísu rita einstöku afburðamenn, lielzl rosknir, enn í hlöðin, enda her still þeirra þá langt af máli liinna eiginlegu blaðamanna. I^YRIR .‘55 áruin var kennari að snúa úr Þýzku fyrir okk- u'r, uemendur sína, nokkurum meginsetningum úr efnafróeði. Yið lókum eftir því, að íslenzkan varð miklu styttri en Þýzkan, og óskaði einliver eftir að fá að vita, livað öll orðin þýddu. Við fenguin glögg og skýr svör um flest orðin og fundum, að rétt var þýtt. En nokkur orð urðu eftir, sem kennarinn sagði, að væru „meðal þeirra fjölda mörgu þýzku orða, sem eiginlega þýða ckki rieitt." Mikið var lirosað að þessari þverstæðu. Kennari þessi var örlyndur, þróttmikill athafnamaður, fjarlægur öllu mál- rófi, og vann stórvirki fyrir þjóð sina sökum óeigingjarnr- ar elju og áhuga um ræktunarmál. Ég lief oft iiugsað síðan um sannleikann í þverstæðunni um orðin, sem ekkert þýða. E',lest nágrannamálin eru lang- orð, með þvældar setningar. Islenzkunni eru slutlar og ljósar setningar eiginlegar. Hver góður þýðandi verður að stytta, sleppa orðum, sem ekkert þýða, er hann leysir setn- ingaþvælur, t. d. úr Þýzku, og meitlar þær sundur í Ijós- ar íslenzkar setningar. Skýrleiki og rökvísi íslenzkunnar er ekki aðeins fólgin 182 jönn

x

Jörð

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Jörð
https://timarit.is/publication/467

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.