Jörð - 01.07.1944, Page 43

Jörð - 01.07.1944, Page 43
þótti mér vont að hætla við þá ákvörðun mína að leila á djúpmiðin og það varð úr, að ég héll áfram út á mið, sem heilir Kögur. l3egar hálfnað er að leggja, verður mér að orði við sjálfan mig: „Liklega er nú nóg komið.“ Þá segir maður, sem verið hafði á skipinu sumarið áður (ég var nýkom- inn): „Hulda hefur nú liaft áfram i sama.“ Þetta varð lil þess, að allt var lagt. Við byrjuðum nærri þvi jafnskjótt að draga lóðina, en alltaf livessti, og síðast var komið rok um allt. Er við höfðum nær lokið að draga, slitnaði línan við síðustu hotnfestina og lagði ég þrisvar að helgnum, en þá var kominn stórsjór og kastaði hann skipinu svo frá, að ekki náðist belgurinn. Þá hætti ég við og léla fara að kasta öllu lauslegu niður í lestina, en einn maður var hafður við til að loka lestarhlerunum, þegar mikið gaf á. A meðan hélt ég bátnum upp í sjóinn, en þá var veðrið orðið svo mikið, að bátnum sló flötum aðra stundina. Allt i einu reis hár hrotsjór. Flaug ])á í hug mér, að þessi sjór bryti á okkur, svo ég kalla: „Lokið hlerun- um! Haldið ykkur!“ í sama bili dreg ég lilerann yfir vélarrúmið, og var þá öruggt, að ekki kæmist þar sjór niður. í þessu augnabliki finn ég koma vfir mig heljar þunga, en missi strax meðvitundina. Hve lengi ég var meðvitundarlaus, veit ég ekki; sennilega aðeins brot úr mínútu. Þegar ég rakna við eða kom upp úr sjónum, sé ég aðeins mastur fram undan. Skipið rak allt undir sjó, eða svo sýndist mér. Hélt ég, að ég væri viðskila við skip- ið, og varð mér að orði við sjálfan mig: „Guði sé lof, að ég fékk að fara á stórri báru,“ en þær hafa mér alltaf þótt tilkomumestar af því, sem ég hef séð. I þessu finn ég, að eitthvað er undir hnésbótum mín- um, en ég lá á bakinu i sjónum. Það eru þá járnrör, er voru ofan á skjjólborðinu. Þá finn ég líka, að ég er með eitthvað i höndunum og eru það stýrisböndin. A þeim hafði ég mig inn fvrir borðstokkinn. Xú fór sjórinn að grynnka á þilfarinu og kom þá í Jörð 185

x

Jörð

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Jörð
https://timarit.is/publication/467

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.