Syrpa - 01.12.1911, Blaðsíða 37

Syrpa - 01.12.1911, Blaðsíða 37
LANDNÁMSSÖGUÞŒTTIR 99 mönnum haustiö og veturinn. Er voraði sáðu þó nýlendubúar akur- bletti sína, sem ekkert væri. í júní lieimtaði Cameron, að Macdonell gæfi sig honurn á vald, og kæmi sem fangi til Montreal. Þessu neit- aði væntanlega landstjóri. Sló þá í bardaga,hefðuorðiðblóðsúthellingar hefði ekki Macdonell gefist upp og lofað að fylgja Camerom austur. Þegar nú Macdonell var fangaður var auðveldara að eiga við nýlendu- búa. Margir þeirra voru samlandar Camerons og höfðu notið gestrisni hans um veturinn. Þeim er austur vildu fiytja,var lofað öllu fögru,bæði löndum og Iausum aurum. Réðust margir til farar og er talið að nál. 140 manns hafi lagt frá Fort Doug- glas um miðjan júní 1815. Hefir ■sjálfsagt verið tæpt hundrað eftir. Ekki var nóg með það, að tveir þriðju hlutar væru af fúsum vilja fluttir austur. Þeir sem eftir voru sættu afarkjörum. Þeir sem nú höfðu forustu af hálfu Norðvestur- fél. voru Skoti, Alexander McDonell að nafni og kynblendingur frá Q’- Appelle, er Grant hét. Hópur kyn- blendinga undir stjórn Grants réðst á nýlenduna, sáu menn sér ekki annað vænna,en að láta undan síga. Tók allur flokkurinn sig upp og lagði af stað og settist að við Jack River á Winnipegvatninorðanverðu. Einir þrír menn voru eftir. Var fyrir þeim maður, er McLeod hét. Varðist hann í húsi sínu með einni kanónu og sat þar um sumarið. Meðan þessu fór fram, var á leið- inni til Fort Douglas rnaður sá er Robert Semple hét. Átti hann að taka við stjórninni við Rauðá. Hann var hermaður, en nú á eftirlaunum. Mun hann hafa helzt tilmikið traust haft á valdi orða sinna og ekki þekt eða haft lag á að kynna sér, lund- arfar og háttu kynblendinga og Ind- íána. Þegar Semple kom til Rauð- ár höfðu nýlendubúar þeir, sem til Jack River flúðu snúið heim. Hafði maður sá er Colin Robertson hét komið vestur. Sendi Selkirk lávarð- ur hann frá Montreal. Mætti Ro- bertson ekki hóp þeim, er Cameron sendi austur, en kom að nýlendunni í rústuni. Hraðaði hann för sinni til fundar við burtrekna nýlendubúa og kom því til leiðar, að þeir réðust í að setjast á jarðir sínar á ný. Duncan Cameron sat nú í Fort Gibraltar og hefir án efa þótt leitt að sjá nýlenduna rísa enn á ný. Þó var ekkert aðgert af hans hálfu um haustið. Nýlendubúar voru liðfleiri því innlendir flokkar höfðust við vestar um sumarið. í október réðst þvíSempleávirki Norðvesturfél.,tók Cameron fanga og hafði burt kan- ónur, sem teknar höfðu verið af ný- lendubúum um vorið. Ekki var Cameron haldið lengi í varðhaldn. Var honum fengið virkið á ný. Lið-- ur nú veturinn, Hávaðinn af ný'- lendubúum hafði farið til Pembina um Veturinn að vanda. Alt mátti heita með kyrð við Rauðá. Semple sat í Fort Douglas, Cameron í Fort Gibraltar. Er voraði þótti Semple ómannlegt að hefna ekki á Cameron föngun Miles Macdonells. í apríl var á ný ráðist á Fort Gibraltar, Cameron hneptur í fjötra ogsettur í harðhald í Fort Douglas. Ekki þótti álitlegt að loka hann þar inni um langt skeið. Var afráðið að Robertson færi með hann til York Factory, og þaðan yrði hann sendur til Englands. Lagði Robertson á stað í maí.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Syrpa

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Syrpa
https://timarit.is/publication/499

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.