Syrpa - 01.12.1911, Page 50

Syrpa - 01.12.1911, Page 50
KONRAÐ OG STORKURINN *ff þorpi einu í Noregi er stork- ** mynd á kirkjunni og á mæni margra húsa. Ettirfylgjandi saga skýrir frá því.hvernig á þessum ein- kennilega sið stendur. í þorpi þessu lifÖi á löngu liöinni tíö ekkja nokkur og sonur hennar, er Konráð hét. Konráö litli og móöir hans höfðu miklar mætur á stork einum og sýndu honum gott atlæti. Þau báru honum mat og gældu við hann og er Konráö litli blístraði kom haun og át úr lófa drengsins. Þau biðu hans meö ó- þreyju á vorin og þegar hann kom virtist hann eins sæll yfir því að sjá þau og þau voru að fagna honum. Vor og sumar liöu óðfluga hjá og Konráð litli var orðinn fullvaxinn maður. Hann afréð aö fara í sigl- ingar og kvaðst ætla að safna svo miklum auð að móðir sín gæti átt góða daga í elli sinni. Hann fór því burt, varð sjómaöur og lagði á staö til ókunnra, fjarlægra landa. í margar vikur gekk ferðin vel, en dag einn, er þeir voru nærri Afríku- ströndum, réðust að þeim sjóræn- ingjar, tóku skipið, settu skipverja í bönd og seldu þá síðan íþrældóm. Vikur liðu. Ekkjan fór að verða hrædd um son sinn, því langt var síðan fréttir höfðu borist af ferðum hans. Skíp hafði komið og farið, en engar fregnir. Að lokum var svo komið, að allir töldu hann af lífi og þorpsbúar höfðu meðlíðan með einstæðingsskap ekkjunnar og sorg. Hún var ekki lengur mönn- um sinnandi og virtist ekki festa ást eða yndi við neitt nema storkinn, sem kom á hverju vori einsog áður. Konráðs vegna fagnaði hún honum og færði honum fæðu, unz haustið kom og hann flaug suður móti sól og sumri. Það bar við dag einn, er Konráð þrælkaði einmana og ylirgefinn á ó- kunnum ströndum, að hann sá stork fljúga í kringum sig með miklum gleðilátum. Honum flaug í hug heimilið sitt gamla og móðir sín og „vorboðinn ljúfi“. Eins og ósjálf- rátt blístraði hann, eins og hann hafði oft gert, til að kalla til sín fuglinn mörgum árum áður. Hon- um til ósegjanlegrar gleði kom storkurinn til hans, eins og hann vænti þess að fá fæðu. Konráð lyfti hjarta sínu til guðs í innilegu þakklæti, fyrir þennan gamla kæra vin,sem kominn var á stöðvar lians. Á hverjum degi leyfði hann dálitlu af sínum skorna skamti, til að geta veitt sér þá gleði, að kalla storkinn til sín og gefa honum að eta úr hendi sinni. En hjarta hans hrygð- ist er sá tími kom, að búast mátti við að fuglinn færi að fljúga norður. Skyldi hann fara til kofa móður hans? Var hreiðrið, sem hann mundi svo vel eftir, þar enn þá? Var nokkur þar nú, til að fagna honum og gefa honum fæðu? Ált í einu datt honum í hug að fuglinn kynni að geta hjálpað sér í burt af þessum stað. Hann gat ritað örfá orð á miða, segjandi hvar hann var og að hann væri í þrældómi. Miða þennan batt hann þétt um fót storksins. Vorið kom enn á ný í norðrinu og með því kom storkurinn. Ekkj- an aldurhnigna sá hann koma, mintist sonar síns og fagnaði hon- um með matgjöfum. Þegar stork- urinn var að eta úr hendi hennar tók hún eftir bréfinu, sem bundið var um fót hans. Til að seðja for-

x

Syrpa

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Syrpa
https://timarit.is/publication/499

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.