Syrpa - 01.12.1911, Side 59

Syrpa - 01.12.1911, Side 59
ORUSTAN VIÐ WATERLOO 121 Hann víggjrti jafnan ramlega áríð- andi og velvalda bletti frammi fyrir og til hliðar viö fylkingu sína og hélt þeim til streitu, var gætinn og varðist jafnan framan af orustunni, en versnaði, þegar á daginn leið, eins og Gustav Adolph, var spar á kröftum og blóði liðsmanna sinna, vel búinn að vopnum ogöðrum föng- um, og sá her sínum ávalt fyrir nægum og göðum kosti, ,,því svatig- ir geta Bretar ekki barizt“ er eftir honum haft. Höfuðeinkenni hans var festa og þolgaeði, ekki hugvit og snarræði eins og Napóleons. Alt um það: kostir Wellingtons reyndust drjúgir einnig við Water- loo,þvf þeir áunnu honum það traust sem aldrei bilaði. Meðan hannstóð, stóðu þeir og, sem á hann þektu, því hann hafði aldrei beðið ósigur, og af því þeir stóðu, þangað til Blucher kom, vanst orustan. Svo þótt Prússar og sagnaskrifarar þeirra (Wachsmuth o. fl.) eigni Blucher sigurinn við Waterloo, þá nutn þó hitt sannara, sem Thiers einnig játar, að hann var að þakka hinni obifanlegu festu (ferjnéié iné- branlabe) Wellingtons og hreysti hins enska fótgönguliðs, sem Soult jafnan bar þann orðstír: ,,Enskir eru hið bezta fótgöngulið í norður- álfunni; til allrar hamingju ér svo lítið af því“. SORGARLEIKUR í KONGSHÖLLUM. (Lauslega þý.tt). í Ð U S T U atriði sorgarleiks þess er frá skal skýrt, eru að beta oss fyrir sjónir í gamla Leaken kastalanum í Belgíu. Maximilian prins og hin tiginborna, fagra prins- essa Carlotta eru aðal-leikendur,þau sem um eitt skeið bátu keisaratign og stýrðu ríki. Öldruð kona hokin og grá fyrir hærum reikar þar um sali, en æfi hennar er brátt á enda. Sigð tímans hefir þegar unnið burt fegurð hennar, sem á æskuskeiði heillaði hinn glæsilegasta prins í Evrópu. Hún verður hrumari með hverjum mánuði, og iæknar hennar telja hvern daginn síðastan. Sælli hefði hún verið ef dauðinn hefði kallað fyrr, því örlög hennar hafa verið beisk. í fjörutíu ár hefir hún verið vitstola, og í öll þau ár hefir Laekan-kastainn verið fangelsi hennar. Stundum korna augnablik, er augti hetinar lýsa rænu og ráði —augun sem áður voru fttll fegurð- ar og fjörs—og þá spyr hún í þús- undasta sinn: ,,Kemur keisarinn í dag?“ Og í þúsundasta sinn er svarað: Ekki í dag“. Þegar þau augnablik koma er kona þessi fær rænu, má hún líta til baka til þeirra fáu en glæsilegu ára, er hún bjó við auð og vald, heilluð draumum um meiri auð og göfgara veldi. Því kona þessi, er böl vitskerðingarinnar læknar sælu- ríkum ódáinsveigum gleymskunnar, er engin önnur en Carlotta, hún sent var um eitt skeið fegurst og fullkomnust allra konungborinna kvenna, og vann keisaratign og glataði henni. í fjörutíu og þrjú ár, og þó leng- ur, hefir bréf eitt beðið Carlottu í Laeken, ef ske mætti að hún gæti lesið það. Maximilian bóndi henn- ar skrifaði það daginn, sem hann var lífiátinn. Metorðafýsn hennar hafði leitt hann út á þáógæfubraut, sem nú var að taka enda,hann hafði heyrt um vitskerðing konu sinnar, og í von um að hún kynni einhvern- tíman að fá rænu til að lesa það skrifaði hann þetta bréf. En seöill- inn bíður enn ólesinn. Svo hljóðar bréfiö.

x

Syrpa

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Syrpa
https://timarit.is/publication/499

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.