Nýjar kvöldvökur - 01.07.1935, Blaðsíða 9

Nýjar kvöldvökur - 01.07.1935, Blaðsíða 9
GULL- OG GIMSTEINABÆIR AFRÍKU 103 deyja allmargir verkamenn árlega af hitaslagi, en þeim fer fækkandi ár frá ári, eftir því sem útbúnaður batnar. Þegar vér höfum skoðað oss þarna um stundarkorn höldum vér lengra niður. Nú er ekki farið í lyftu, heldur klifrum vér eftir ófullkomnum stigum 300 metra enn niður á við, þar sem nýfundin eru gullauðug jarðlög. Vér erum nú á botni dýpstu námu heimsins, 2350 metrum undir yfirborði jarðar. Þarna niðri eru gangarnir þröngir og lágir. Hitinn er hér nær óþolandi og svit- inn streymir niður af okkur. Negrarnir, sem hér eru að vinnu, eru allsnaktir. Hit- inn er enn óbærilegri en ella vegna þess, að loftið er mjög rakt. Orsök þess er sú, að þegar borað er og sprengt í berginu, kemur fram mikið ryk og til þess að halda því niðri er vatni dælt þar niður án afláts. Hafa sérstakir umsjónarmenn þann starfa á hendi að hindra ryk- myndun. Vatn er hér, sem annarstaðar í Suður- Afríku, mjög lítið í jörðu sakir hins þurra loftlags. Námafélögin sleppa því við þau útgjöld að dæla vatni úr námun- um, aftur á móti verða þau að láta dæla vatni í námurnar til að væta námugöng- in og draga úr rykplágunni. Rykið, sem er mjög kvartsauðugt, er stórhættulegt verkamönnunum. Lungun fyllast af því og þeir sýkjast af kísileitrun, og fjöldi þeirra deyr af henni. Heilsufræðistofnun Jóhannesarborgar hefur rannsakað sjúk- dóm þenna mjög nákvæmlega og tekizt að koma á miklum endurbótum í námun- um, svo að dauðsföllum af þessari orsök hefur mjög fækkað. Þó deyja um 250 manns árlega úr kísileitrun. Eitt meðal annars, sem furðulegt er í þessari gullauðugustu námu jarðarinnar er, að maður sér alls ekki gullið, sem mokað er upp úr iðrum jarðar. Gullkorn- m eru svo smá, að þau eru nær ætíð ó- sýnileg berum augum. Bergtegund sú, sem hér um ræðir, er molaberg. Sand- korn og steinvölur eru límdar saman með kvartsi. Meðal sandkornanna glittir hing- að og þangað í brennisteinskís, en gullið sést fyrst þegar bergtegundin er sett und- ir smásjá. Lögum þesum hallar, svo að alltaf dýpka námurnar. Enn hefur eigi tekizt að ákveða aldur þeirra til fullnustu, en svo mikið er víst að þau eru frá elztu tímabilum jarðsögunnar. Meira en helmingur af árlegri gull- framleiðslu jarðarinnar er unnið í Suð- ur-Afríku, var verð þess 1932 nokkuð yf- ir 49 milljónir sterlingspunda, og mest af þessu gulli er grafið í Witwatersrand. Gullnámurnar við Jóhannesarborg voru fyrst í stað unnar af einstökum mönnum eða smáfélögum, sem fundið höfðu gull- ið, en nú eru allar námurnar í höndum auðfélaga. Fyrstu gullnemarnir hafa að- eins haldið smáskikum, sem eru svo gull- snauðir að stórrekstur svarar ekki kostn- aði. Á örfáum stöðum í Suður-Afríku þvo menn enn gull úr ársandi, en slíkt svarar ekki kostnaði þegar gullið er jafndreift í berginu og hér. Bergið er nefnilega ekki sérlega gullauðugt. Úr hverju tonni af grjóti fæst einungis 1 */G sterlingspunds virði af gulli og % gullverðsins fara í kostnað við að vinna það. Það sem gerir það kleift fjárhagslega að nema gull hér, er hve víðlend hin gullbornu lög eru. Gullið er numið þannig, að bergið er brotið með dynamitsprengingum eða bor- unum. Síðan er grjótinu ekið í vögnum að lyftunum, sem bera það- upp á yfir- borðið. I dýpstu göngunum eru enn eng- ar lyftur, þar er gullgrjótið dregið upp á sporvögnum eftir snarbröttum teinum. Þegar málmgrjótið kemur upp í dagsljós- ið, er það tínt í sundur og malað og úr mylsnunni er gullið unnið með ýmiskon- ar efnablöndun. Mest er notað Cyanka-

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.