Nýjar kvöldvökur - 01.07.1935, Blaðsíða 50

Nýjar kvöldvökur - 01.07.1935, Blaðsíða 50
144 NÝJAR KVÖLDVÖKIJR anum, sem lagt hefir sig fram um að gera ritið sem aðgengilegast með ítarleg- um skýringum og löngum formála. Öðru máli er að gegna um bók Þórbergs Þórðarsonar: Alþjóðamál og málleysur. Bókin er ekki heppilega valin og allt of löng. Að vísu hefir höfundurinn víða rök að mæla, og margt mælir með því, að tilbúið mál geti orðið fljótlærðari og auðveldari hugsanamiðill en þjóðtung- urnar, sem allskonar tilviljun og örlög hafa mótað frá aldaöðli. Það má vitan- lega sníða af óteljandi þýðingarlaus asnaeyru og setja málfræði hins nýja máls í miklu handhægara og skynsam- legi-a form, en fálmandi hugsun manns- andans hefir skapað ósjálfrátt. En allt slíkt mætti útskýra svo að nægilegt sé í Iitlum bæklingi og ónauðsynlegt að eyða svo óstjórnlega löngu máli í jafn auð- sæjan hlut. Þorbergur gengur að hlut- verki sínu með álíka móði og spámaður, sem er að berjast móti öllum heiminum fyrir framgangi síns málstaðar og á í vök að verjast. Þessvegna er bókin líkari trúboðsriti fyrir Esperanto, en almennu fræðiriti og ber orðbragðið sumstaðar keim af því. Þetta stafar af því, að Þor- bergur er fyrst og fremst postullega inn- rættur og gerir þessvegna hvert sitt á- hugamál að trúmáli. Við þessu er ekkert að segja, ef menn forblindast ekki í hof- móði og offorsi, en í því er hættan fólg- in. Sannleikurinh er sá, að Esperanto- hreyfingin er á engan hátt ómerkileg, þó að ágæti hennar liggi auðvitað starf- andi kennurum málsins mest í augum uppi. En vel er það hugsanlegt, að auð- lært alþjóðamál fengi einhverju áorkað i þá átt, að færa menn nær hugsjón bróð- ernisins, og er þá alls ekki unnið fyrir gíg. Frá því trúarlega sjónarmiði er þessi Ianga bók Þorbergs fyrirgefanleg. Benjoimin Rristjánsson. Skritlur. — Heyrðu, lánaðu mér 50 krónur. — Hérna hefurðu tuttugu og fimm. — Ég bað þig um fimmtíu. — Ég heyrði það. En finnst þér ekki réttast, að við berum sinn helminginn hvor af tapinu? Stórbóndi nokkur kom til kirkju kald- an vetrardag og var í geysi mikilli sauð- skinnsúlpu. Þegar hann kom inn, var presturinn að lesa: — — þeir koma til yðar eins og úlfar í sauðargæru. Bóndi varð bálreiður og sneri við í dyrunum og hélt beint heim aftur. Afrjrciðslumivöimnn: Já, ungfrú María er heldur en ekki sein í snúningum. Deildarstjórinn: Já ,ég held ég viti nú það. Hún, sem hefur þurft þrjátíu ár til að verða tvítug. Nærsýnn maður hafði verið í samsæti. Heilli klukkustund eftir að hann var bú- inn að kveðja, kom húsbóndinn fram í forstofu, og stóð þá nærsýni maðurinn þar í frakka og með hattinn á höfðinu. — Hvað — ertu hérna ennþá? spurðí húsbóndinn steinhissa. — Já, svaraði nærsýni maðurinn. Ég missti gleraugun mín. Og svo gat ég ekki séð sjálfan mig í speglinum, og þá hélt ég, að ég væri farinn. Þegar Mark Twain var ritstjóri, skrif- aöi hann einu sinni, að Chicago væri stæling af helvíti. Út af þessu varð upp- þot mikið, svo að Mark Twain bauðst til að taka orð sín aftur. Hann skrifaði þá: »Chicago er engin stæling af helvíti — það er helvíti, sem er stæling af Chi- cago«.

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.