Nýjar kvöldvökur - 01.07.1935, Blaðsíða 23

Nýjar kvöldvökur - 01.07.1935, Blaðsíða 23
ÆFINTÝRI ÚR ÍSHAFINU 117 inn með reku. Nokkrum sinnum stanzaði hann og pjakkaði af öllum mætti, þang- að til hann sannfærðist um, að ísinn þyldi feikna þunga, og svo hélt hann á- fram. —■Kaðallinn er ekki lengri, kallaði Guy. — Nú, jæja, þið getið komið á eftir svo sem fimmtíu metra. ísinn er nógu sterkur, svax-aði Ranworth. I sömu andrá rak hann upp áðvömar- óp, en áður en hinum tækist að draga kaðalinn nægilega til sín, sáu þeir sér til skelfingai', að ísinn seig umhverfis hann. Ranworth baðaði út höndunum í ár- angui'slausri tilraun til að ná jafnvægi — og hvarf í djúpið. Hinn óvænti kippur hafði næstum því fleygt þremenningunum flötum, því að lítil fótfesta var á hálum isnum. Þar að . auki rann kaðallinn gegmum greipar þeiiTa, og hefði Rússinn ekki verið svo forsjáll, að binda honum um sig miðjan, hefðu Ranworth og kaðallinn horfið um eilífð í djúpið. En nú dinglaði hinn nauð- staddi maður fimmtíu fetum fyrir neðan Ibrúnina í hyldjúpri gjá. Drengirnir tveir og Rússinn tóku að -draga kaðalinn. Fet eftir fet drógu þeir, ■ og að lokum heyrðu þeir óljóst, að Ran- woi-th kallaði til þeiri'a og bað þá að . staixza. Þeir hlýddu samstundis. Þeir glöddust við að heyra röddina, því að þeirra dómi var það kraftavei'k, að Ranwoi'th skyldi ekki hafa hiyggbrotn- að við svo skyndilegt hrap. Raunar var það loðfrakkinn þykki, er hafði bjargað honum. Fallið var nógu hátt til að svifta hann málinu í bili, og það var fyrst, er hann átti ófarin finrni fet upp á brún, að honum tókst að vara félagana við nýrri hættu, er vofði yfir honum. — Kaðallinn slitnar! hrópaði hann. Festið hann, ef þið getið, og kastið öði'- um kaðli niður til mín. Ég get kannske náð í hann. Ef ekki------ Þessi óbotnaða setning talaði sjálf sínu máli. — Við getum haldið kaðlinum, Guy, sagði Leslie fljótt. Hlauptu eftir öðrum, — hann má vei'a gildai'i, ef þú finnur hamx. — Og reku, bætti hann við. Guy flýtti sér, svo sem hægt var á hálum ísi, og kom bi'átt aftur. Hann kastaði kaðalendanum fimlega eftir ísnum, en kom honum ekki alla leið. Hann reyndi nokkrum sinnum, án þess að tækist. Kaðallinn var of þungur og óþjáll til þess að honum yrði kastað veru- lega langt. Aftur heyrðu þeir rödd Ranworths. — Verið fljótir, hi'ópaði hann. ísbrún- in sker kaðalinn. Hann dugir ekki lengi hér eftir. — Leslie, sagði Guy alvarlegur. Ég ætla að fara með kaðalinn fram á bx'ún- ina og renna honum niður. Þið hafið- nógu langan enda til að ganga með hann til baka og festa við sleðann. Fljótt nú! Leslie hlýddi möglunarlaust. Þeir gáfu Rússanum mei’ki og gengu síðan allir aftur á bak, og létu kaðalinn jafnótt renna hægt gegnum hendur sér. Hann reyndist mátulega langur til þess, að hægt væri að binda enda hans við hemlana á sleðanum. Er þeir höfðu geih það, gátu Leslie og Peti-ovitch hjálpað Guy. Þeir hnýttu tvær lykkjur á nýja kaðalinn, aðra í endann, en hina tíu fetum fjær. Síðari lykkjunni bi'á Guy yfir sig og gekk síðan í áttina til gjárinnar, en fé- lagar hans gáfu eftir af kaðlinum jafn- óðum. Hér um bil tuttugu fetum frá gjánni fleygði Guy sér flötum á ísinn. Það brak- aði i ísnum, en hann hélt. Guy mjakaði sér gætilega áfram og ýtti fremri lykkj- unni á undan sér.

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.