Nýjar kvöldvökur - 01.07.1935, Blaðsíða 12

Nýjar kvöldvökur - 01.07.1935, Blaðsíða 12
106 NÝJAR KVÖLDVÖKUR Þeir höfðu farið fimm enskar mílur inn eftir firðinum, þeg'ar þeir beygðu skyndilega fyrir háan odda, og sáu »Po- larity« liggja fyrir akkerum nokkru innar. Þeir gátu naumast trúað sínum eigin augum. Þeir höfðu farið frá skipinu föstu í ísnum mörgum mílum sunnar, og samt sem áður hafði það náð ákvörðun- arstaðnum áður en undanfari þess, þótt hraðskreiður væri. Skarkalinn í loftskrúfum vélsleðans hafði þegar tiíkýnnt komu þeirra og siglutrén voru krökk af loðskinnsklædd- um mannverum, sem æptu af fögnuði. Leslie varð af tilviljun litið framan í Ranworth. Þar sáust engin gleðimerki. Öðru nær. — Svipur foringjans var raunalegur. Hann stóö kyrr og horfði á tímamælinn.1) Hann var stanzaður. -—- Einkennilegt, tautaði hann. Hann leit á úrið sitt. Það nægði að draga það upp áttunda hvern dag, eins og tímamælinn. Það var líka stanzað. Það var samt enginn tími til að rann- saka málið nú. Skipverjar á »Polarity« köstuðu út kaðli, og stuttu síðar lá vélsleðinn bund- inn við skipshlið. — Hvernig er ástatt? spurði Storm- leigh skipstjóri, þegar Ranworth kom yfir borðstokkinn. Ég er hræddur um að fyrirhöfn okkar hafi verið árangurslaus. — Fyrirhöfn ykkar árangurslaus ? sagði Ranworth. Þið hafio verið vel að verki, fyrst þið gátuð komizt til Desola- tion Creek á svo skömmum tíma. Hvern- ig fóruð þið að því? Nú kom röðin að Stormleigh skipstjóra að vera hissa. — Við höfum unniö af kappi, svaraði hann. En hvernig leið þarna? Hann benti á áttina þangað sem leið- angur Claude Ranworths beið liðveizlu. J) Kronometei’. — Hvað eigið þér við, skipstjóri? spurði Ranworth. Eruð þaö þér eða ég, sem farið er að dreyma? Við höfum ekki komið þangað enn. Við vorum nú fyrst að koma til Desolation Inlet. Ef þér — Hann þagnaði. Hinn hræðilegi grunur, sem rétt áður hafði fest rætur hjá hon- um, óx til muna. — í dag er þriðjudagur, er það ekki? spurði hann. — Nei, herra Ranworth. Það er fimmtudagur, svaraði Stormleigh sldp- stjóri. Nú var sem ljósi brygði upp fyrir Ranworth. Hann vissi nú, hevrsvegna tímalælir- inn og úrið hans stönzuðu. Eftir hrakn- ingana á\ ísnum hafði áhöfn vélsleðans sofið afsakanlega, — ekki í tólf stundir, eins og þeir höfðu haldið, heldur í fjöru- tíu og átta! Meðan sleðinn hafði legið ó- virkur við ísbrúnina, hafði »Polarity« tekizt að finna leið nokkru austar, þann- ig, að skipið hafði komizt á vettvang fjórum stundum fyrr en Ranwortn og förunautar hans. Stormleigh skipstjóri varð á hinn bóg- inn að álíta, að vélsleðinn hefði þegar fundið búðir heimskautakönnuðanna, en án þess að finna annaö en líkin af hinum ógæfusömu mönnum. — En þér standið þó í þráðlausu sam- bandi við bróður minn, maður! hrópaði Ranworth. Stormleigh hristi höfuðið. — Þangað til í fyrradag, já, svaraði hann. Síðan hafa allar tilraunir til að ná sambandi við leiðangurinn verið gagns- lausar. Ranworth kreppti hnefana. — Það er ef til vill ekki of seint enn- þá, sagði hann. Lánið mér tvo aðra há- seta, skipstjóri, og svo förum við sam- stundis.

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.