Nýjar kvöldvökur - 01.07.1935, Page 19

Nýjar kvöldvökur - 01.07.1935, Page 19
ÆFINTÝRI ÚR ÍSHAFINU 113 um þetta, þangað til sleðinn næði búðum heims'kautskönnuðanna. Það mundi vera heimskulegt að halda áfram fimmtán til tuttugu mílur inn í land, áður en Rúss- amir gætu gefið glögga vitneskju um, hvar hinir ógæíusömu félagar þeirra væru niður komnir. Hann var hrifinn upp úr hugsunum sínum af brakandi hljóði, sem æ ágerð- ist. Snjórinn hafði frosið fljótt, og hjól- in ultu nú áfram á ís, sem var nógu sterkur til þess, að þeir gátu nú skipt um og notað stálmeiðana. Og aftur þaut sleðinn af stað með fjörutíu mílna hraða á klukkustund. — Ég skal taka við stýrinu, Guy, sagði Ranworth og tók við. Það getur ekki ver- ið langt eftir. — Tíu mínútum síðar fékk Leslie skip- un um að taka hreyflana úr gangi. Sleð- inn hægði ferðina og stanzaði tæpum tíu fetum frá snjókofa einum, er stóð yztur í þyrpingu af slíkum kofum. Leiðangurinn var kominn að búðunum. XV. Síðasla leitin. Djúp kyrrð ríkti í búðunum. Ekkert merki sást um líf. Nýfallinn snjórinn, sem nú var frosinn, var ósporaður. Milli kofanna lágu nokkrir kassar, hrúgur af skinnpokum og leifar af þremur hunda- sleðum að hálfu leyti kafið i snjó. Stormmegin hafði snjórinn hlaðizt í skafla, næstum því jafnháa kofunum. Dyrnar á kofunum, sem voru mátulega háar til þess að maður gæti skriðið um þær, voru lokaðar með skinnum. Ranworth stökk út úr sleðanum og gekk að kofanum, sem næstur var. Les- lie og Guy fylgdu honum. Ranworth skreið á fjórum fótum inn göngin og reif fyrirhengið frá. Það var niðamyrkur iirni, því að sjálfur skyggði hann íyrir birtuna, sem lagði inn um göngin. Hann stakk hendinni í vasa á loð- frakka sínum og dró upp rafmagnsljós- ker. I bjarmanum sá hann, að kofinn var mannlaus. Á gólfinu lágu nokkur skinn og ýmsir munir á víð og dreif. I loftinu hékk olíulampi. Ranworth hristi hann, en geymirinn var þurr. — Hér er ekki nokkur hlutur, sagði hann með beizkum vonbrigðahreim í röddinni, og án þess að bíða eftir, að hinir kæmu inn, sneri hann út aftur. Rannsókn næsta kofa bar sama árang- ur. í honum voru aðeins fá harðfrosin selskinn. Þau höfðu verið flegin í flaustri af dýrunum, og enn héngu frosin kjöt- stykki við þau. Ekki höfðu selirnir held- ur verið drepnir vegna skinnanna, því þau voru mjög óreglulega skorin. Það var bersýnilegt, að leiðangur Claude Ranworths hafði orðið að nærast á hráu selskjöti, eins og Rússarnir. En hvernig þeir höfðu farið að veiða þessi sjódýr fjörutíu eða fimmtíu enskar míl- ur frá hafi, var ráðgáta. Þriðji kofinn hafði tvöfalt fyrirhengi. Göngin inn í hann voru líka lengri. Innra fyrirhengið var bundið fast. Meðan Ranworth reyndi að finna hnútinn, heyrði hann hrópað veikri röddu: — Það er bjarndýr, Tom! Taktu riff- ilinn þinn! Fljótur! — Kyrrir! hrópaði Ranworth. Fyrirhengið var rifið til hliðar. Mökk- ur af olíureyk gaus út, svo að Ranworth fór að hósta og vöknaði um augu. Hann greip andann á lofti, og þar sem hann gat ekkert séð, beið hann átekta á fjór- um fótum. — Ó, John! Ertu loksins kominn? kall- aði þreytuleg rödd. Það var Claude Ranworth, sem bauð bróður sinn velkominn. 15

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.