Nýjar kvöldvökur - 01.07.1935, Blaðsíða 14

Nýjar kvöldvökur - 01.07.1935, Blaðsíða 14
108 NÝJAR KVÖLDVÖKUR Skaramt frá þeim til hægri var brúnin lægri en annarstaðar, en jafnvel þar mundi verða örðugt um uppkomu. Ranworth stöðvaði sleðann. Við skulum sjá, hvað hinum megin er, áður en við reynum að koma sleðanum upp, sagði hann. Þeir fóru nú úr sleðanum, að Leslie undanteknum, og skriðu yfir brúnina. Nokkru fjær var hrúga af smágrjóti, sem nýlega hafði oltið ofan úr sprungum þar upp undan. Ranworth hrópaði upp yfir sig af fögnuði. — Þessir steinar eru okkur ómetan- legir. Við veltum nokkru af þeim fram af brúninni, og á hálfri klukkustund get- um við byggt upp brekku, sem sleðahjól- in geta náð festu í. Þeir hófu þegar verkið. Það gekk fljótt, og hálftíma síðar var steinstíflan til. Þeir sneru þá aftur í sleðann, hjólin voru látin falla, og hann skreið hægt upp á brúnina. Leslie lyfti hjólunum aftur, og sleðinn hélt för sinni áfram á stálmeiðunum. — Farðu nú með fullum hraða, sagði Ranworth. Vegurinn er góður. Sleðinn var kominn inn úr dalverpinu, og landið var tiltölulega slétt. Það var allt hulið þykkum ís og snjó. Tveim stundum síðar tilkynnti Guy, sem tekið hafði við stýrinu af Ranworth, að ás nokkur lægi þvert fyrir framan þá. í hann voru tvö þröng skörð. — Að hvoru þeirra á ég að stýra? spurði hann Ranworth. — Ég hygg, að það sé alveg sama, svaraði hann. Bæði eru viðlíka mikið úr leið frá stefnu áttavitans. Við getum til dæmis valið hægra skarðið. Minnkaðu hraðann, þegar við nálgumst það. Við viljum ekki rekast á neitt, ef hægt er áð komast hjá því. Leiðin gegnum skarðið var auðfarn- ari en Ranworth bjóst við. Það voru merki eftir snjóflóð og grjótskriður báð- um megin, en engar hindranir í miðju. — Hvað er þetta þarna? spurði Guy eitt sinn, þegar sleðinn beygði. 1 kvos nokkurri í urðarskriðu skammt frá þeim stóð stærsta dýrið, sem dreng- urinn hafði nokkurn tíma séð. Það líkt- ist fíl, en í stað hinna snöggu hára bar það Ijósgráan loðfeld. Raninn var teygð- ur fram, og sitt hvoru megin við hann var íbogin höggtönn, a. m. k. fimmtán. feta löng. — Stýrðu að því, skipaði Ranworth. Guy hlýddi, en furðaði sig þó á, hvað foringinn ætlaðist fyrir. Sleðinn var ekki hentugur til að drepa svo risavaxið dýr með honum. — Nú erum við nógu nærri, sagði Ranworth allt í einu. Það er leiðinlegt, að við skulum ekki mega staldra við og gaumgæfa dýrið nánar. Þessar höggtenn- ur eru mjög verðmætar. »Ég hélt það væri lifandi, sagði Guy. •— Það hefur verið það einu sinni, fyr- ir mörgum hundruðum ára, svaraði Ran- worth. Þetta er mammút og einstætt dæmi af þeirri tegund. Hann er auðsjá- anlega nýlega afhjúpaður, eftir þessar ó- vanalegu þýður á þessu ári. Eftir því sem ég fékk bezt séð, var hann óskadd- aður. Mig furðar ekki á, þótt þú héldir, að hann væri lifandi. Menn hafa líka fundið nokkuð af þeim í Norður-Síberíu, en þeir hafa ekki geymzt svona vel. Við verðum að ná í þessar höggtennur, ef við höfum tíma til, þegar við höfum lokið áformi okkar. Eitt er þó áreiðanlegt, og það er, að leiðangur bróður míns kom ekki þessa leið. Hann fór um vinstra skarðið. — Hvernig getið þér vitað það? spurði Guy. — Jú, Claude mundi, ef svo hefði ver- ið, hafa fundið mammútinn. En það hef-

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.