Nýjar kvöldvökur - 01.07.1935, Page 10
104
NÝJAR KVÖLDVÖKUR
lium og rafmagnsgreining. í bænum
'Germiston nálægt Jóhannesarborg eru
stærstu hreinsunarstöðvarnar. Þar er
sagt að á mánuði hverjum séu malaðar
2milljónir tonna af málmgrjóti.
Þar sem námurnar eru stöðugt grafn-
ar dýpra og dýpra, hefur burðarþol jarð-
laganna í kring orðiö mikilsvert viö-
fangsefni í Jóhannesarborg. Alltaf við
og við koma þar smájarðskjálftar, þegar
gömul námugöng síga saman, en hættan
fer stöðugt vaxandi, enda þott jarðlögin,
sem námurnar eru grafnar í, séu sterk.
Reynt hefur verið að draga úr hættunni
með því að steypa, sementssúlur og fylla
gömul námagöng með sandi.
1 námum þessum vinna um 200000
»innfæddir«, þ. e. litaðir menn, og 20000
hvítra manna. Duglegustu verkamenn-
irnir eru svertingjar frá nýlendum
Portúgals í Austur-Afríku. Leita þeir til
Transwaal í stórhópum, enda þykir eng-
inn maður með mönnum þar heima, hafí
hann ekki verið gullnemi urn skeið. Eng-
inn verkamaður er . tekinn í nánlurnar
nema eftir undangengna læknisskoðun.
Fyrst í stað er þeim ekki hleypt niður i
námurnar, heldur vinna þeir ofanjarðar
og búa þar í stórum skálum og fá sér-
staklega nærandi og fjörefnaríka fæðu,
sem á að gera þá hæfa til að þola hina
sérstaklega erfiöu námavinnu.
Nú á síðari árum hafa oft verið þar
verkföll. Einkum kvað mikið að því 1922.
Lá þá við byltingu. Vegna þessara erfið-
leika við-svertingjana var reynt á tíma-
bili aö flytja Kínverja þangað. En þeir
reyndust enn óþjálli og almenningsálitið
var einnig mjög mó.tfallið þessum inn-
flutningi, svo að valdhafarnir neyddust
til að senda Kínverjana heirn aftur.
Gullnám í Afríku er æfagamalt, Til
vitnis um það eru rustir frá forneskju,
er finnast í Suður-Rhodesíu við Khami
og Zimbawbe. Eru rústir þær frægar
orðnar því að mælt er að þær hafi gefið
enska skáldinu Rider Haggard hugmynd-
ina í söguna »Námar Salomons« og fleiri
sögur af líku tæi. Rústir þessar, sem nú
eru mjög teknar að hrörna, eru veggir
breiðir, turnar og tröppur, allt hlaðið úr
granít og með ýmsu steinskrauti. Skraut-
munir úr gulli og steinstyttur hafa einn-
ig fundizt þar. Enn í dag er lítil gull-
náma rétt við rústirnar í Khami. Ýmsar
minjar hafa fundizt um gullgröftinn til
forna. Þarna eru alldjúp námagöng og
gryfjur. Einnig finnast þar víða granít-
skálar, sem málmgrýtið hefir verið mul-
ið í og tálgusteinsdiglur, sem notaðar
voru til að bræða gullið í úr grjótinu.
Þrátt fyrir nákvæmar rannsóknir vita
menn ekkert um aldur þessara rústa og
náma, því að engar áletranir hafa fund-
izt þar. Samt þykjast menn þess fullviss-
ir að svertingar hafi ekki verið þar að
verki. Sumir halda að þetta sé verk Fön-
íkumanna hinna fornu, og að Salomon
konungur hafi í raun og veru fengið
héðan allt það gull, sem hann þurfti til
musteris síns. Aðrir halda áftur á móti
að persneskir og arabiskir kaupmenn
hafi numið þarna gull, því að víst er það,
að þeir höfðu mikil skipti við Afríku
löngu áður en Portúgallar komu þangað.
Sigldu þeir þangað skipum sínum með
staðvindunum, en létu monsúnvindinn
knýa fley sín heimleiðis. Höfðu þeir
þannig byr báðar leiðir.
(Framhald).
Byggingameistari einn var nýskeð orð-
»nn riddari af Dannebrog. Skömnui
seinna var hringt í sima og spurt eftir
byggingameistaranum.
— Nei, riddarinn er ekki heima! var
svarað. — Það er riddarafrúin, sem tal-
ar!