Nýjar kvöldvökur - 01.08.1927, Page 17

Nýjar kvöldvökur - 01.08.1927, Page 17
NÝJAR KVÖLDVÖKUR 95 sem hann treysti þeim illa, eftir kunningsskap- inn við Bach, þá skifti hann einatt um og gætti þess, að láta þá aldrei vita hvorn um annann. í raun og veru þóíti honum leitt, að vera svona tortrygginn gagnvatt öllum nema Philip Manson, en nær fjell honum um trega að komast að því, að öll vinnugleði hans var horfin. Manson setti sjer það mark, að gera Wheat Belt brautina að fyrirmyndarjárnbraut og vann að því á meðfæddan rólegan hátt. Steele fanst þessi metnaður tilgangslaus og lítils um verður, þar sem einhver braskarinn í New York gat gert fjelagið að fjárglæfrafyrirtæki, gat eyðilagt það, ef hann vildi og sagt upp starfs- mönnum þess með viku fyrirvara. Virðing hans fyrir Manson og löngun hans til að gera eina manninum í veröldinni greiða, sem hafði reynst honum vinur, hjeldu honum í stöðinni meira en ár, þótt vinnan yrði honum æ erfið- ari, en þá kom atburður fyrir, sem gaf honum tækifæri til að hætta að vera nytsamur þjóð- fjelagsborgari og fara yfir i hóp hintia rænandi braskara. Varðhundurinn var orðinn að gráð- ugum úlfi. Stöðvarsfjórinn sagði kæruleysislega, að sjer kæmi hraðlestin ekkert við, og sótti inn á símaskrifstofuna sterkan trjestól, sem hann Ijet í mestu forsæluna á stöðvarpallinum, því næst settist hann og sperti bífurnar upp á grindurn- ar, dró hníf upp úr vasa sínum og fór að tálga staf; starf, sem hraðlestin virtist hafa tafið hann frá. Andspænis honum í brennandi sólskininu stóð ungur, grannvaxinn maður með ferðatösku í hendinni. Hann horfði örvæntingaraugum á hraðlestina, sem var að hverfa við sjóndeildar- hringinn og Ijet eftir slg langan reykjarhala eins og halastjarna. Pví næst sneri hann sjer að hinum rólega stöðvarstjóra. »Pað er þá alvara yðar, að hjeðan fari eng- in lest á hliðarlínunum fyr en eftir hálfan þriðja tíma?« »Pað hefi jeg aldrei sagt, af því að hjer er engin hliðarlína.* »Engin hliðarlína? Til hvers eru þá þessir ryðbrunnu teinar, sem liggja á hægri hönd?« »Já, það eru 5—6 þúsund manns, sem gjarnan vildu fá þeirri spurningu svarað. Fyrrum vildi fólk þetta gjarnan vita það, en nú Iætur það sjer ekki eins ótt. Jeg á hjer við hluthafana, sem lagt hafa fje sitt í brautina. Við köllum þetta bændabrautina, og hún er ekki hliðarlína, hún er jafnsjálfstæð og aðal- brautin.c »Eða þjer sjálfir,« mælti ungi maðurinn. »Nú jæja, hvað sem því líður, hún er sjálf- stæð og mjer kemur hún ekkert við.« »Hafa ekki þessir helvítis asnar, sem eíga hana, látið sjer detta í hug, að tengja hana einhverri lest á aðalbrautinni ?« »Við eium auðvitað allir a;nar, ef við eigi erum frá Chigaco,* sagði stöðvarstjórinn rólega. »Jæja, vinur minn, við skulum láta hjer við sitja. Jeg vildí, að jeg gæti fengið eitthvað að drekka, ef hjer væri krá nærri, sem ekki lítur út fytir. Pað er víst hvergi sfaður hjer f þessum fordæmda reit, þar sem hægt er að fá svaladrykk á heitum dögum?« »Nú skal jeg segja yður, að lest sú, sem kemur á morgnanna kl. 9 vestan að, skilur hjer eftir stóran ísköggul. Pessi ísköggull rennur í stórri frjeíötu inni á símaskrifstofunni og vatnið í kringum hann er ískalt. Ef þjer eigið eitthvað í vasa yðar eða í töskunni yðar til að blanda það, þá er ekkert til fyrirstöðu, að þjer getið fengið ágætan svaladrykk.« »Kæri vinur,« sagði Steele hlægjandi, »þjer ættuð að vera forstjóri þessarar brautar í stað stöðvarstjóra. Pjer eruð vitrasti maðurinn, sem jeg hefi hitt í tvö ár.« Um leið og hann sagði þetta, opnaði hann handlöskuna og tók upp úr henni stóra leður- klædda flösku með siifurstút. *Jeg til, að við förum inn á símaskrif- stofuna,« bætti hann við, »og rannsökum þessa trjefötu.«
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.