Nýjar kvöldvökur - 01.08.1927, Síða 102

Nýjar kvöldvökur - 01.08.1927, Síða 102
180 NÝJAR KVÖLDVÖKUR. og hárið hjekk í óreiðu niður um vangana. Árni stóð hjá henni og lýsli henni með lýsis- lampanum. Hann fylgdi hverri hreyfingu henn- ar eftir með órólegum augum. Guðný veitti honum enga eftirtekt, hún keptist við að grafa skaflinn. Loks sagði hún með nokkurri alvöru: >Reyndu að troða snjóinn, dtengur, svo að þú hafist eitthvað að.« Árni fór að kjökra, en samt hlýddi hann og fór að trampa niður snjóinn, en á lampanum hjelt hann ýmist í hægri eða vinstri hendi, því að honum var orðið kalt. Móðir hans yrti ekki á hann, hún mokaði í ákafa. OFt mundi hún eftir að fer.t hafði fyrir dyr og glugga, en þess mintist hún ekki, að skafl- arnir hefðu orðið svo þykkir, að þeir hefðu algerlega úti lokað hverja ljósglætu — að snjót- inn innan frá gæfi ekki neina birtu frá sjer, það var einsdæmi. Skyndilega henti hún rekunni og hljóp inn í eldhúsið. Hún horfði upp í rjáfrið, þar sem hún vissi að eldhússtrompurinn var. En þar gat hún ekki sjeð hina minstu Ijósglætu. Um stund stóð Guðný grafkyr í myrkrinu á eldhúsgólfinu. Hún var að venja sig við hugs- unina um, að hún væri virkilega fent inni. Að bærinn, ásamt henni og börnunum, væri fentur, að snæhafið hefði lokast yfir bæinn! Hefði drekt honum með því, er hann geymdi — að bylurinn kynni að halda áfram að orga yfir bænum, sem nú væri sokkinn í margra álna djúpa fönn — tíu eða tuttugu daga. Eitt var víst, að svo lengi 'sem bylurinn stæði, bæri engan mann að garði, og þegar svo loksins að sveitungar hennar yrðu þess varir, að bærinn væri grafinn undir stórfenni, sem skeð gæti að fylti dalinn, þar sem bærinn stóð, mundu þeir þá gera verulega tilraun til að grafa niður á bæinn? Og ef þeir reyndu til þess, voru þá nokkur líkindi til, að þeir fyndu hann? Allan veturinn mættu þéir grafa, og án árang- urs, svo framarlega að fönnina hefði lagt þykt yfir bæinn — að leita bæjarins f slíkri fönn, yrði auðvitað jafnárangurslaust og að leita eftir sokknu smáfari í hyldýpi úthafsins .... Ástand hennar og barnanna var afar óálit- legt, það gat naumast verra verið .... Ein á botni þessa þrotlausa myrkurs og án eldsneytis. Vatnið í læknum gat líka þiotið alt í einu, það hafði fyr komið fyrir. Regar svo hlákan kæmi, þá mundu húsin fyllast af vatni, er streyma mundi inn frá öllum hliðum. M'tt í þessum hugleiðingum var eins og hvíslað væri að henni, að þar sem hún og börnin væru svona nauðuglega stödd, þá hlyti Höskuldur að vera á lífi. Hún varð undir eins viss um, að þetla hugboð sitt væri rjett. Pað var, samkvæmt fornum skilningi foðfeðranna, ekki líklegt, að hönd örlaganna 'nyggi fleira en eitt banahögg í ættliðinn í einu. Nú var hún viss um, að Höskuldi væri borgið. Hún gekk fram í dyrnar þar sem Arni stóð hreyfingarlaus og starði í myrkrið í snjógrifjunni úti fyrir dyrunum, hún tók lampann af honum og klapp- aði honum á kollinn, »Við erum fent í kaf; það er að vísu ólík- legt, en nú veit jeg, að pabbi er á lífi, heyr- irðu? Jeg veit það! Og við skulum grafa okkur gegnum fönnina, þó við verðum að að grafa til nýjárs.« Árni heyrði á rödd móður sinnar, að hún var viss um það sem hún sagði. Hann fór að tala um kringumsfæður við hana. Hvað áttu þau að gera af snjónum? Hlaða honum inn í skemmuna, sem stóð til hliðar við bæjar- dyrnar? Pjappa honum saman eftir bestu getu, bera hann inn f önnur hús í írambænum, þeg- ar rúmið í skemmunni þryti. Jú, það var ekki um annað að gera. Eldsneytisspursmálið var erfiðara. Hvernig áttu þau að sjóða graut, kjöt eða nokkuð annað? Alt yrðu þau að eta kalt, og brauð yrði ómögulegt að baka. • Fyrst verðum við að grafa göng út að svarðarhlaðanum,« sagði Guðný. Rau byrjuðu strax að grafa göng út að hlaðanum. Eftir að hafa grafið í fjóra daga, voru göngin orðin átján álnalöng, þá þóttust þau viss um, að hafa tekið skakka stefnu í fyrstu; þessa fjóra daga höfðu þau einkis annars neytt en súrs sláturs
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112

x

Nýjar kvöldvökur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.