Sjómannadagsblaðið - 07.06.1942, Blaðsíða 28
8
SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ
hliðum. Voru fundarmenn því almennt fylgj-
andi, að framkvæmdir yrðu hafnar við fyrsta
tækifæri til að hrinda því af stað, en skoðana-
munur varð nokkur um það, hvort hafa skyldi á
stefnuskrá dagsins baráttu fyrir því að reisa
minnisvarða yfir drukknaða sjómenn. Sam-
þykkt var endanlega að leita samvinnu við önn-
ur sjómannafélög um sameiginlegan minningar-
dag drukknaðra sjómanna, sem jafnframt yrði
notaður til að kynna sjómannastéttina út á við,
lífskjör hennar og störf.
Nokkrar umræður urðu um mál þetta eftir
afgreiðslu þess á fundinum, og voru ritaðar um
það nokkrar greinar í málgagn loftskeyta-
manna, Firðritarann, og tímaritið Ægi. 1 júlí-
blaði Ægis var á það bent, meðal annars, að
hugmyndin um minnisvarða drukknaðra sjó-
manna hefði áður verið rædd í íslenzkum blöð-
um, og hefði Friðbjörn Aðalsteinsson, stöðvar-
stjóri Loftskeytastöðvarinnar í Reykjavík, haf-
ið fyrstur manna umræður um það á opinberum
vettvangi, að slíkur minnisvarði yrði reistur.
Kom sú tillaga fram í sambandi við minningar-
athöfn, sem haldin var um sjóslysið mikla 7.—8.
febr. 1925. í sambandi við þann sorgaratburð
var, sem kunnugt er, reistur í Reykjavík minn-
isvarði yfir drukknaða sjómenn — og hann var
táknrænn í tvennum skilningi. Varðinn, sem
gerður var af Ríkharði Jónssyni myndhöggv-
ara, minnti að formi til áþreifanlega á sjólífið
sjálft, var í eðli sínu einskonar túlkun á hætt-
um þess og öryggisleysi, gerð í líkingu sjó-
manns, er stóð á verði í skipsstafni, með hendi
brugðinni yfir augun, eins og horft væri í stór-
hríð móti stormi og hafróti. En efniviðurinn var
að sínu leyti engu síður táknrænn. Varðinn var
byggður úr — snjó, sorglegur vottur, en sann-
ur um hinar hverfulu samúðaröldur, sem oft rísa
hátt í bili, þegar krafizt er af sjómannastéttinni
blóðugustu fórnanna í dægurbaráttu hennar á
hafinu, en hjaðna að jafnaði aftur svo ótrúlega
fljótt og skilja eftir meðal alþjóðar svo óendan-
lega lítinn skilning á lífskjörum þeirra, sem
eftir lifa, starfsbræðranna, sem heyja áfram
baráttu hinna föllnu og halda merki þeirra uppi,
þó að skörð komi í fylkingarnar.
í samræmi við fundarsamþykkt þá, sem fyrr
var getið, var nú stéttafélögum sjómanna í
Reykjavík og Hafnarfirði ritað bréf um málið,
og samstarfs óskað við þau til að hrinda í fram-
kvæmd hugmyndinni um sérstakan Sjómanna-
dag. Var tilmælum þessum vel tekið, og 8. marz
1937 var haldinn í Reykjavík sameiginlegur
fundur um málið, þar sem mættir voru fulltrúar
frá eftirtöldum félögum: Sjómannafélagi
Reykjavíkur, Skipstjórafél. Kári í Hafnarfirði,
Skipstjórafél. íslands, Skipstjórafél. Aldan,
Skipstjóra- og stýrimannafélagi Reykjavíkur,
Vélstjórafélagi íslands, Matsveina- og veitinga-
þjónafélagi Islands og Félagi íslenzkra loft-
skeytamanna.
Frummælandi var Henrý Hálfdánsson, loft-
skeytamaður. Gerði hann ítarlega grein fyrir
tilefni fundarins og lagði því næst fram upp-
kast að skipulagsskrá fyrir væntanlegan Sjó-
mannadag.
Málið var nú rætt frá ýmsum hliðum og voru
fundarmenn allir á eitt sáttir um nauðsyn þess,
að slíkum degi yrði komið á, til að kynna sjó-
mannastéttina út á við, ræða starfssvið hennar
og lífskjör á opinberum vettvangi og afla henni
þess álits meðal þjóðarinnar almennt, sem hún
raunverulega ætti kröfu til. Um hitt urðu aft-
ur á móti skiptar skoðanir, hvort á það skyldi
litið sem meginverkefni dagsins, að í sambandi
við hann yrði hafin fjársöfnun til minnisvarða
yfir drukknaða sjómenn. Töldu ýmsir það ekki
viðeigandi, að sjómenn gerðust sjálfir hvata-
menn slíkra aðgerða og álitu réttara, að með
kynningarstarfsemi á kjörum sjómanna, sepi
framkvæmd yrði í sambandi við daginn, yrði
vakin meðal almennings sú samúð með starfi
þeirra, að þaðan kæmu raddir um að reisa þeim
bautastein, er fórnað hefðu lífi sínu í barátt-
unni við Ægi. Henry lagði hinsvegar á það
mikla áherzlu, að baráttan fyrir minnisvarðan-
um yrði höfð á stefnuskrá dagsins, sem megin-
hlutverk hans í framtíðinni og taldi vafalaust,
að vinsældir hans myndu aukast stórkostlega
meðal landsmanna, ef við hann yrði tengd bar-
átta fyrir svo háleitri hugsjón.
Eftirfarandi tillaga var að lokum samþykkt í
málinu:
,,Fundur, haldinn af ýmsum stéttafélögum
sjómanna í Reykjavík og Hafnarfirði, til um-
ræðna um stofnun Sjómannadags, samþykkir að