Sjómannadagsblaðið - 07.06.1942, Blaðsíða 55
I
SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ
35
Ásgeir Sigurðsson:
Sameinaðir stöndum vér
Nokkur undanfarin ár hefir sú nýbreytni ver-
ið tekin upp, að halda sérstakan Sjómannadag.
Þykir sjómönnum mjög vænt um hann, og lifa
í voninni um, að margt gott megi af honum
leiða. Svo mikið er víst, að allir þeir, sem þess
eiga nokkurn kost, munu þá safnast saman til
sameiginlegs gleðskapar og til þess æ betur að
treysta bönd vináttu og samstarfs.
Er óhætt að fullyrða, að þessi hátíð sjómann-
anna hefir í alla staði farið drengilega og vel
fram að undanförnu, og verður að vona og
treysta því, að svo verði framvegis.
Á þessum degi hafa allir sjómenn klæðzt í
hátíðaskap og gleymt daglegu striti og öllum
erjum. Við þetta tækifæri hafa sjómenn og út-
gerðarmenn staðið hlið við hlið og talað til
þeirra, er á hafa viljað hlýða. Er það gleðileg-
ur vottur þess, að sá skilningur er að blómgast,
að það sé báðum fyrir beztu.
Sjómannadagsráðið hefir nú færzt eigi alllít-
ið í fang, þar sem um er að ræða byggingu
hvíldarheimilis fyrir uppgjafasjómenn, þannig
að ágóði Sjómannadagsins renni til þessarar
fyrirhuguðu byggingar. Hefir ráðið og beitt sér
fyrir fjársöfnun almennt í sama augnamiði. Er
það fögur og drengileg hugmynd og verður að
vona, að allir góðir íslendingar ljái máli þessu
lið, eftir beztu getu.
Enda þótt margt af því, sem fram fer á Sjó-
mannadaginn í höfuðstað landsins, fari fram
hjá stéttarbræðrum okkar úti um land, munu
þeir samt á sinn hátt taka þátt í þessum hátíða-
höldum og eftir því sem efni standa til. Sam-
kvæmt fréttum, er borizt hafa a“f framkvæmd-
um í þessum efnum á undanförnum árum, hefir
víða verið myndarlega á málunum tekið, og
þeim, sem að þeim stóðu, til sóma. Æskilegast
væri auðvitað, ef þess væri kostur, að allir gætu
mætt á einum stað, en því verður eigi við komið
fyrr en einhverntíma í framtíðinni, þegar vega-
lengdir og tími verða aukaatriði, en það verður
að sjálfsögðu þegar við förum að eignast risa-
flugvélar, eins og stóru þjóðirnar. Þá getum við
haldið hátíðlegan dag þennan á Þingvöllum, ef
svo byði við að horfa.
Óska ég þess svo að lokum, að dagurinn megi
verða öllum sjómönnum og venzlafólki þeirra
dagur gleði og ánægj'u, og þjóð vorri sannur
heilla-dagur.
Frá sið'asta Sjómannadegi: Biskupinn,
hr. Sigurgeir Sigurðsson, flytur ræðu.